Internetið gerir grín að Caleb Williams „Ég hélt náttúrulega að hann hefði slitið hásin,“ segir Eiríkur Stefán Ásgeirsson, einn af sérfræðingum Lokasóknarinnar, um meiðsli sem leikstjórnandi Chicago Bears, Caleb Williams, varð fyrir í síðasta leik liðsins. Sport 25.9.2026 23:17
Svo slakir að stuðningsmenn tóku púlsinn Green Bay Packers riðu ekki feitum hesti í leik við Atlanta Falcons í NFL-deildinni vestan hafs í nótt. Sport 25.9.2026 10:30
Ljót meiðsli og ælt á völlinn Jayden Daniels og félagar í Washington Commanders áttu slæma helgi í NFL-deildinni. Daniels verður frá um hríð eftir að hafa farið úr olnbogalið. Sport 24.9.2026 11:03
„Þetta er árið hjá Bengals“ Cincinnati Bengals er hlaðið hæfileikum en veikleikar liðsins síðustu ár hafa verið of margir svo liðið næði einhverjum árangri. Enn eitt árið fara stuðningsmenn Bengals bjartsýnir inn í tímabilið. Sport 13. september 2026 12:31
„Lamar Jackson hefur aldrei gert neitt“ Baltimore Ravens hefur ekki staðið undir væntingum undanfarin ár og því fór félagið í róttækar aðgerðir eftir síðasta tímabil. Sport 13. september 2026 11:02
Hrútarnir frá Hollywood eiga að fara alla leið Liðið sem allir og amma þeirra spá í Super Bowl þetta tímabilið er LA Rams. NFL-deildin kemur þó endalaust á óvart og Rams rann á bossann í Ástralíu í nótt gegn 49ers. Sport 11. september 2026 17:15
Yfir hundrað þúsund áhorfendur mættu á NFL-leik í Ástralíu NFL-deildin spilaði sinn fyrsta leik í Ástralíu í nótt þegar San Francisco 49ers unnu Los Angeles Rams. Leikurinn endaði með öruggum 27-7 sigri 49ers en yfir 100 þúsund manns voru í stúkunni að horfa á leikinn. Sport 11. september 2026 09:00
Seahawks lenti í áfalli en endurtók samt sigurinn úr Ofurskálinni Biðin er loks á enda og hófst NFL tímabilið í nótt með leik Seattle Seahawks og New England Patriots. Þetta voru sömu lið og spiluðu síðast í Ofurskálinni og náði Seahawks að vinna báða leikina. Leikinn í nótt unnu þeir 13-10. Sport 10. september 2026 08:01
Dagskráin: Arsenal og Liverpool í Meistaradeildinni og NFL byrjar Það er nóg um að vera á sportrásum Sýn Sport í dag. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla heldur áfram að rúlla með frábærum leikjum og Lokasóknin hefur göngu sína þetta tímabilið fyrir NFL deildina. Sport 9. september 2026 06:01
Afmælisdagurinn sem aldrei kom San Francisco 49ers flaug í síðustu viku til Ástralíu og það þýddi að stórafmælisdagur eins þjálfara liðsins rann aldrei upp. Sport 8. september 2026 17:01
Kjúklingur kostnaður fyrir treyjunúmerið Ruðningskappinn Von Miller gerði nýstárlegan samning til að fá uppáhalds treyjunúmer sitt hjá Dallas Cowboys. Sport 4. september 2026 10:02
Sextán tíma flug og spilað fyrir hádegi NFL-deildin býður Kaliforníu-liðunum 49ers og Rams upp á krefjandi verkefni í fyrstu umferð NFL-deildarinnar. Það er að spila leik í Ástralíu. Sport 3. september 2026 12:01
Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Tony Romo, fyrrverandi leikstjórnandi Dallas Cowboys í NFL deildinni, hefur játað sök í máli sem höfðað var gegn honum fyrir að aka bifreið undir áhrifum. Romo segist eiga við drykkjuvandamál að stríða. Sport 2. september 2026 07:01
Einn sá besti snýr aftur Aaron Donald, af mörgum talinn á meðal betri varnarmanna í sögu NFL-deildarinnar, hefur tekið skóna af hillunni til að leika með Los Angeles Rams á ný. Sport 31. ágúst 2026 09:30
Settur til hliðar vegna ákæru Josh Jacobs, hlaupari Green Bay Packers í NFL-deildinni, hefur verið settur í bann af deildinni á meðan leyst er úr meintri líkamsárás hans á hendur kærustu. Sport 31. ágúst 2026 08:31
Meistaraliðið selt fyrir metverð Eigendur NFL deildarinnar hafa samþykkt að klára söluferli á ríkjandi meistaraliðinu Seattle Seahawks. Milljarðamæringurinn Vinod Khosla verður nýr eigandi en hann kaupir félagið fyrir metverð, 9,612 milljarða dollara. Sport 27. ágúst 2026 12:46
Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Ný rannsókn hefur varpað ljósi á hversu gríðarlega algengur heilaskaði er meðal fyrrum leikmanna í NFL deildinni. Lengi hefur verið vitað um áhættuna en svona háar tölur hafa ekki áður verið staðfestar með læknisfræðilegum aðferðum. Sport 26. ágúst 2026 07:09
Eigandi 49ers handtekinn Eigandi NFL-liðsins San Francisco 49ers, Jed York, gekk í gildru lögreglunnar er hann ætlaði að kaupa sér vændi í Ohio-fylki. Sport 25. ágúst 2026 14:33
Alveg viss um að NFL muni hafa lið utan Bandaríkjanna Roger Goodell, yfirmaður NFL, er ekki í vafa um að í framtíðinni verði lið í deildinni sem er ekki með aðsetur í Bandaríkjunum. Sport 18. ágúst 2026 16:15
Kevin Hart kom honum í gegnum erfiða tíma í steininum Rashee Rice, útherji Kansas City Chiefs í NFL-deildinni, segist hafa lært mikið af mánaðardvöl sinni í fangelsi fyrr í ár. Það hafi reynst raunveruleikaskoðun. Sport 12. ágúst 2026 11:00
Teslan á sjálfstýringu þegar hann klessti á Kyle Shanahan, þjálfari San Francisco 49ers í NFL-deildinni, segir Teslu sem hann keyrði á hafa verið á sjálfstýringu þegar hann beygði yfir á öfugan vegarhelming í sumar. Árekstur varð vegna þess og Shanahan braut nokkur bein. Sport 9. ágúst 2026 21:31
Höfuðhöggin á ferlinum valdi heilabilun Ruðningskappinn fyrrverandi Roger Craig vakti athygli á áhrifum höfuðhögga í NFL-deildinni í ræðu vegna inntöku hans í frægðarhöll deildarinnar. Hann greindi frá greiningu sinni á heilabilun og kennir höfuðhöggum um. Sport 9. ágúst 2026 09:00
Var launahæstur í sögunni í tvo daga Bijan Robinson, leikmaður Atlanta Falcons, varð í vikunni launahæsti hlaupari í sögu NFL-deildarinnar. Það met varði aðeins í tvo daga. Sport 8. ágúst 2026 23:32
Æfir blindandi og skýtur á eigandann Einstök ný æfingaaðferð útherjans Ceedee Lamb, sem leikur fyrir Dallas Cowboys í NFL-deildinni, hefur vakið athygli. Hann segist þurfa að geta gripið boltann blindandi. Sport 5. ágúst 2026 08:33