Dreymir um að Vík í Mýrdal verði ævintýraþorp Íslands Það er okkar draumur að Vík verði ævintýraþorp Íslands, segir Samúel Alexandersson, einn fjórmenninganna sem standa að svifvængjaflugi og línubruni í Vík í Mýrdal. Lífið 20. nóvember 2019 14:15
Á rétt á bótum eftir að hafa tekist á loft við Reynisfjöru Héraðsdómur Reykjavíkur hefur viðurkennt að bresk kona sem slasaðist í ferð á vegum Sterna Travel árið 2014 eigi rétt á skaðabótum frá Sternu vegna helmings þess tjóns sem hún varð fyrir er hún slasaðist. Innlent 19. nóvember 2019 18:04
Alþjóðlegasta samfélag á landinu er Vík í Mýrdal Vík í Mýrdal er orðin alþjóðlegasta þorp landsins en fjörutíu prósent íbúanna eru núna erlendir ríkisborgarar. Rótgrónir Mýrdælingar segja þetta jákvæða breytingu. Innlent 18. nóvember 2019 21:34
Brunaði fram hjá lögreglubíl í vegkanti Lögregla á Suðurlandi kærði í liðinni viku ökumann á Mýrdalssandi fyrir að aka of hratt miðað við aðstæður. Innlent 18. nóvember 2019 13:01
Vilja geta lokað áður en fólk lendir í sjónum Fjögur ráðuneyti hafa ákveðið að ráðast í gerð áhættumats við Reynisfjöru vegna tíðra slysa á svæðinu. Innlent 18. nóvember 2019 12:02
„Ég leyfi mér að segja að Vík sé fallegasta þorp á Íslandi“ Litla sveitaþorpið hefur á fáum árum breyst í alþjóðlegan ferðamannabæ. Hótel og veitingastaðir hafa sprottið upp sem og fjölbreytt afþreyingarstarfsemi. Lífið 17. nóvember 2019 07:50
Fjármagnar áhættumat á Reynisfjöru Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, mun fjármagna og fylgja eftir verkefni um áhættumat fyrir Reynisfjöru ásamt skilgreiningu verkferla. Innlent 16. nóvember 2019 10:00
„Aldrei séð fjöruna svona rosalega“ Þórólfur Sævar Sæmundsson, leiðsögumaður, segist aldrei hafa séð jafn rosalegan öldugang í Reynisfjöru og var þar um tíma eftir hádegi í dag. Innlent 11. nóvember 2019 22:15
Ferðamaður slasaðist í Reynisfjöru Viðbragðsaðilar á Suðurlandi voru kallaðir út um klukkan 15 í dag vegna erlends ferðamanns sem hafði slasast í miklum öldugangi í Reynisfjöru. Innlent 11. nóvember 2019 18:00
Sameining rædd á Suðurlandi Tillaga oddvita Skaftárhrepps um að hafnar verði viðræður um kosti og galla sameiningar sveitarfélaganna Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps var samþykkt í sveitarstjórn. Innlent 4. nóvember 2019 08:00
Þyrla sótti rjúpnaskyttu sem varð fyrir slysaskoti í Eldhrauni Skot hlaut úr byssu rjúpnaskyttu á sjötugsaldri og hæfði hann í fótinn. Innlent 1. nóvember 2019 20:23
Husky-hundurinn í Vík greip gæsina af veiðimanni í þorpinu Íbúar í Vík órólegir vegna Husky-hunds með vafasama fortíð. Innlent 10. október 2019 11:40
Hlaupinu í Múlakvísl lokið Hlaupinu í Múlakvísl er lokið og rafleiðni er komin í eðlilegt horf miðað við árstíma. Þá hefur rennsli einnig minnkað. Innlent 8. október 2019 15:33
Husky grunaður um kattardráp át gæs Lögreglan á Suðurlandi hefur mál til rannsóknar í Vík í Mýrdal sem snýr að Husky hundi. Hundinum er gefið að sök að hafa tekið sig til og étið gæs. Innlent 7. október 2019 10:32
Enn varhugavert að staldra við nálægt Múlakvísl Mikil gasmengun fylgir hlaupinu sem nú stendur yfir í Múlakvísl en það hefur ekki náð hámarki og gæti vaxið. Innlent 2. október 2019 08:46
Mikil gasmengun fylgir hlaupi í Múlakvísl Ef fólk finnur fyrir einkennum, svo sem sviða í nefi eða augum, á að yfirgefa svæðið strax Innlent 1. október 2019 17:12
Fólk þarf að vera á varðbergi í Þakgili í dag Veðurstofan varar fólk við að vera nærri upptökum Múlakvíslar vegna jarðhitaleka undan jökli. Brennisteinsmengun er yfir heilsuverndarmörkum en eiginlegt hlaup er ekki hafið Innlent 1. október 2019 11:30
Jarðhitavatn lekur í Múlakvísl Rafleiðni hefur hækkað jafnt og þétt síðustu tvo daga. Innlent 1. október 2019 08:48
Ferðamenn hætt komnir í Reynisfjöru í dag Litlu mátti muna að verr færi en ítrekað hefur verið sagt frá atvikum þar sem ferðamenn eru hætt komnir í fjörunni. Innlent 15. september 2019 16:59
Strandhreinsun í Dyrhólaey Umhverfisstofnun býður almenningi að taka þátt í strandhreinsun í Dyrhólaey næstkomandi sunnudag í tilefni dags íslenskrar náttúru sem er daginn eftir. Mun landvörður bjóða gestum í létta fræðslugöngu áður en haldið verður niður á strönd. Innlent 12. september 2019 07:30
Kvikugúll gæti sprungið með miklu sprengigosi en einnig verið friðsæll Kvikugúll í Kötlu gæti sprungið með gríðarlegu sprengigosi, líkt og gerðist í Öskju 1875, en gúlagos geta einnig verið tiltölulega friðsæl. Innlent 10. september 2019 20:30
Rísandi leynigúll í Kötlu gæti skýrt fjallhrap í Mýrdalsjökli Jarðvísindamenn hafa uppgötvað meiriháttar fjallhrap í vestanverðum Mýrdalsjökli þar sem fjallshlíð er að skríða fram um þrjá millimetra á dag. Innlent 9. september 2019 20:53
Fylgjast grannt með jarðhitavatni í Múlakvísl Veðurstofa Íslands fylgist grannt með jarðhitavatni sem lekur nú undan Mýrdalsjökli í Múlakvísl. Innlent 8. september 2019 13:33
Ætla að loka austasta hluta Reynisfjöru varanlega Veðurstofan telur að þar eigi stór partur eftir að falla úr hlíðinni til viðbótar á næstunni. Innlent 29. ágúst 2019 13:20
Vöruflutningabíll valt í Vík Bílstjórinn sagður hafa sloppið án alvarlegra meiðsla. Innlent 29. ágúst 2019 12:35
Mýrdælingar óhressir með sinn auðkýfing Rudolp Walther Lamprecht strýkur fólkinu í Mýrdal öfugt með skiltum sínum. Oddvitinn vill þau niður. Innlent 29. ágúst 2019 10:52
Ferðamenn klifruðu upp á skriðuna í Reynisfjöru Virtu lokanir að vettugi. Innlent 28. ágúst 2019 16:50
Segir Mýrdælinga nokkuð sátta með sumarið í ferðaþjónustu Ferðamannasumarið í ár verður á pari við það síðasta, segja Mýrdælingar í ferðaþjónustu, og segjast sáttir í sumarlok. Svartsýnisspár um hrun rættust ekki. Innlent 27. ágúst 2019 20:57
Óttast að stór sylla geti fallið ofan í Reynisfjöru Ennþá er talin hætta á berghruni úr suðurhlíð Reynisfjalls og verður austasta hluta Reynisfjöru áfram haldið lokuðum um sinn. Innlent 23. ágúst 2019 21:40
Enn hætta á berghruni og hluti Reynisfjöru áfram lokaður Ákveðið hefur verið að halda austasta hluta Reynisfjöru lokuðum enn um sinn vegna hættu á berghruni úr suðurhlíð Reynisfjalls. Innlent 23. ágúst 2019 12:42