Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Þriðji maðurinn, erlendur ríkisborgari, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna meints manndráps á Kársnesi í Kópavogi sem nú er til rannsóknar. Áður höfðu tveir menn, einn íslenskur og annar erlendur, verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Innlent 11. ágúst 2026 09:14
Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Einn maður til viðbótar var færður fyrir dómara í gær í tengslum við manndrápsmálið á Kársnesi. Farið var fram á gæsluvarðhald yfir manninum en ekki liggur fyrir hvort það var veitt. Innlent 11. ágúst 2026 06:34
Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ Einhver breyting virðist hafa átt sér stað hér á landi, hvað varðar manndrápsmál, um árið 2020. Þá fór slíkum málum að fjölga töluvert en erfitt er að greina einhverjar ástæður fyrir því. Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands, segir eðli manndrápa hér á landi enn á þann veg að gerandi og fórnarlamb tengist með einhverjum hætti. Innlent 10. ágúst 2026 19:19
„Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Sakborningur sem grunaður er um aðkomu að mannsláti á Kársnesi í Kópavogi í gær hyggst áfrýja gæsluvarðhaldsúrskurði sem var kveðinn upp í dag. Verjandi hans segir hann aðeins hafa ekið hinum sakborningnum á vettvang. Innlent 10. ágúst 2026 19:01
Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Lögreglan á Suðurlandi reynir nú að hafa uppi á breskum hjónum sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl á bílastæði við Eldgjá í Skaftártunguafrétti á laugardaginn. Lögreglu barst tilkynning um málið í gær og reynir nú að rekja ferðir fólksins. Innlent 10. ágúst 2026 17:05
Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga andlega fatlaðri konu tvívegis á heimili sínu árið 2023. Í ákærunni sem fréttastofa hefur undir höndum segir að maðurinn hafi notfært sér traust konunnar vegna þess að hann var bílstjóri. Innlent 10. ágúst 2026 16:38
Neitaði að borga og sló vagnstjórann Ungur karlmaður neitaði að greiða fargjald í strætisvagni á leið 6 um klukkan 11 í morgun. Þegar vagnstjórinn vísaði honum út úr vagninum sló hann til vagnstjórans áður en hann fór út. Innlent 10. ágúst 2026 16:02
Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Tveir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna vegna andláts í Vallargerði á Kársnesi í Kópavogi í gær. Innlent 10. ágúst 2026 15:07
Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga fjórtán ára gamalli stúlku í nóvember árið 2015. Innlent 10. ágúst 2026 14:56
Þrír handteknir á Þingvöllum Þrír voru handteknir af lögreglunni á Suðurlandi grunaðir um vasaþjófnað á Þingvöllum. Þar með bætist í hóp grunaðra vasaþjófa. Innlent 10. ágúst 2026 12:26
Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verst allra fregna vegna rannsóknar á manndrápi sem mun hafa verið framið í heimahúsi á Kársnesi í Kópavogi í gær. Nokkrir hafa verið handteknir vegna málsins, en ekki liggur fyrir hversu margir þeir eru, og hvort farið verði fram á gæsluvarðhald á hendur þeim, eða einhverjum þeirra. Innlent 10. ágúst 2026 11:56
Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Lögreglan á Suðurnesjum, björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Brunavarnir Suðurnesja og Slökkvilið Grindavíkur verða með aukinn viðbúnað vegna almyrkvans á sólu miðvikudaginn 12. ágúst. Á Reykjanesi og verður almyrkvinn allt frá tveimur mínútum til 1.45. Innlent 10. ágúst 2026 11:37
Nokkrir handteknir vegna mannsláts Einn var handtekinn fljótlega eftir að alvarleg líkamsárás var framin í heimahúsi í Kópavogi í dag. Í kjölfarið voru nokkrir handteknir til viðbótar í aðgerðum lögreglu í austurhluta Reykjavíkur. Sá sem varð fyrir árásinni er látinn. Innlent 9. ágúst 2026 20:49
Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Maðurinn sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í kvöld er fundinn. Innlent 9. ágúst 2026 19:41
Rannsaka manndráp á Kársnesi Lögreglan rannsakar manndráp sem mun hafa verið framið á Kársnesi í Kópavogi í dag. Innlent 9. ágúst 2026 18:00
Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Mikill viðbúnaður lögreglu var við íbúðarhús sem er í verslunarkjarna við Gnoðarvog í Reykjavík um fimmleytið í dag, en þegar mest var voru minnst sex lögreglubílar á vettvangi. Þá voru að minnsta kosti tveir menn leiddir út í járnum. Innlent 9. ágúst 2026 17:32
Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Einn var fluttur á slysadeild vegna alvarlegrar líkamsárásar í heimahúsi í Kópavogi í dag. Innlent 9. ágúst 2026 16:43
Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Sjö líkamsárásir rötuðu á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og í nótt, sem þykir heldur mikið, en fjöldi fólks var samankominn í miðborginni vegna Hinsegin daga sem fóru fram í vikunni. Nokkrir voru fluttir til aðhlynningar á slysadeild en ekki liggur fyrir hversu alvarlegar árásirnar voru. Innlent 9. ágúst 2026 11:01
Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Sjö mismunandi tilkynningar um líkamsárásir bárust vakthafandi lögreglu á lögreglustöð eitt, sem sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi. Mikill fjöldi var samankominn í miðborginni í gær en hin árlega Gleðiganga fór þar fram og var lögregla kölluð til vegna samkvæmishávaða á svæðinu. Innlent 9. ágúst 2026 07:45
Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti útkalli í dag vegna fólks sem virti ekki götulokanir í miðborginni vegna Gleðigöngunnar, sem hófst klukkan 14 í dag og lauk með tónleikum í Hljómskálagarðinum sem kláruðust nú um fimmleytið. Innlent 8. ágúst 2026 17:36
Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Töluvert sírenuvæl vakti athygli íbúa þegar slökkviliðið brást við tilkynningu úr Mjölnisholti nærri miðbæ Reykjavíkur. Innlent 8. ágúst 2026 10:59
Hafnaði úti í fjöru Bíll hafnaði út í fjöru við Gufunes rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi. Ökumaðurinn var fluttur á sjúkrahús en er ekki talinn alvarlega slasaður. Innlent 8. ágúst 2026 10:37
Endaði út af eftir framúrakstur Einn bíll hafnaði utan vegar eftir umferðarslys á Vesturlandsvegi í gær. Slysið varð vegna framúraksturs samkvæmt lögreglu. Einnig var tilkynnt um vasaþjófnað í miðborginni. Innlent 8. ágúst 2026 07:24
Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Teitur Atlason, fyrrverandi varaborgarfulltrúi, hefur fengið sig fullsaddan af innbrotahrinu sem nú geisar í miðborg Reykjavíkur og nágrenni. Nú síðdegis var brotist inn í bílskúr heimilis hans á meðan eiginkona hans var heima. Hann kallar eftir því að lögreglan taki sig taki og stingi þeim sem eru ábyrgir fyrir hrinunni í steininn. Innlent 7. ágúst 2026 16:52
Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný Íbúar í og við miðborg Reykjavíkur hafa orðið varir við ítrekuð innbrot í bíla í hverfinu. Einn íbúanna fann síma annars í bílnum sínum. Aðalvarðstjóri segir að tilkynningum um innbrot fjölgi á ný. Innlent 7. ágúst 2026 12:54
„Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Ráðist var á Bjartmar Leósson hjólahvíslara við mathöllina á Hlemmi í gær. Bjartmar segir í færslu í Facebook-hópnum Hjóladót ofl. tapað, fundið eða stolið að hann hafi fengið eitt gott högg og að það sé „spenna í loftinu“. Hann segir annan hafa hótað að berja sig með járnröri. Innlent 7. ágúst 2026 11:22
Stöðvaður tvö kvöld í röð Ökumaður í umdæmi lögreglustöðvar fjögur var stöðvaður annað kvöldið í röð grunaður um að aka undir áhrifum. Einnig er hann án ökuréttinda. Innlent 7. ágúst 2026 06:14
Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Áfram var nokkuð um innbrot og þjófnaði miðsvæðis í Reykjavík í dag, samkvæmt skrá lögreglu yfir verkefni dagsins. Þá gerðust tveir ökumenn á höfuðborgarsvæðinu sekir um það að vera í þriðja skipti teknir án ökuréttinda. Innlent 6. ágúst 2026 22:22
Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tvöfalda þyrfti flota Landhelgisgæslunnar og koma upp annarri bækistöð á landsbyggðinni ef vel ætti að vera að mati yfirflugsstjóra gæslunnar. Yfirvöld hafi verið jákvæð fyrir slíkri stækkun en nú reyni á efndir. Mikil aukning varð á útköllum hjá gæslunni í sumar,. Innlent 6. ágúst 2026 22:01
Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Sakborningar í umfangsmiklu fjárkúgunarmáli eru nú tíu talsins. Brotaþolar eru þrír en lögreglan hefur upplýsingar um að þeir kunni að vera talsvert fleiri og hvetur fólk sem kann að hafa orðið fyrir barðinu á svikurum að stíga fram. Innlent 6. ágúst 2026 21:02