Hótar Musk alvarlegum afleiðingum styðji hann Demókrata Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sendi Elon Musk, auðugasta manni heims og fyrrverandi bandamanni sínum, viðvörun í gær. Trump sagðist ekki hafa nokkra ástæðu til að lappa upp á samband þeirra að svo stöddu, eftir opinberar deilur þeirra síðustu daga. Þá hét Trump „alvarlegum afleiðingum“ ef auðjöfurinn notaði peninga sína til að styðja Demókrata í framtíðinni. Erlent 8. júní 2025 10:38
Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ætlar að senda tvö þúsund menn úr þjóðvarliði Kaliforníu til Los Angeles og úthverfa, þrátt fyrir að Gavin Newsom, ríkisstjóri, hafi mótmælt því. Forsetinn vill nota hermennina til að kveða niður mótmæli sem haldin hafa verið gegn áhlaupum og handtökum útsendara Innflytjendastofnunar Bandaríkjanna (ICE) í borginni. Erlent 8. júní 2025 08:30
Mótmæli og átök eftir áhlaup ICE í Los Angeles Til átaka kom milli mótmælenda og starfsmanna Innflytjendastofnunnar Bandaríkjanna (ICE) eftir að tugir voru handsamaðir í áhlaupum ICE víðsvegar um Los Angeles í gær. Karen Bass, borgarstjóri, segir aðgerðum ICE í borginni ætlað að skapa ótta meðal íbúa. Erlent 7. júní 2025 11:00
Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Elon Musk, auðugasti maður heims, og fyrrverandi samstarfsmaður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, hefur gefið til kynna að hann langi að stofna nýjan stjórnmálaflokk í Bandaríkjunum. Það er í kjölfar mjög svo opinberra deila hans og Trumps síðustu daga, og segist Musk vilja kalla flokk þennan „Ameríkuflokkinn“. Erlent 7. júní 2025 09:32
Stærsta árásin á Kharkív hingað til Rússar gerðu í nótt umfangsmestu árásir þeirra á borgina Kharkív frá því innrás þeirra í Úkraínu hófst. Notast var við tugi dróna, hefðbundnar sprengjur sem varpað er úr lofti og að minnsta kosti eina eldflaug og eru að minnsta kosti þrír sagðir liggja í valnum í borginni. Tveir til viðbótar féllu í árásum á borgina Kherson í suðurhluta Úkraínu. Erlent 7. júní 2025 08:01
Engin sátt í sjónmáli: Trump vill selja Tesluna Sátt virðist ekki vera innan seilingar milli Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og auðkýfingsins Elons Musks. Trump er sagður ætla að selja nýja Tesla-bílinn sinn sem hann keypti einmitt til stuðnings Musk. Erlent 6. júní 2025 16:10
Reyna að stilla til friðar með símtali Aðstoðarmenn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, hafa skipulagt símtal milli hans og Elons Musk, auðugasta manns heims, eftir opinberar deilur þeirra í gær. Vonast er til þess að þeir geti grafið öxina en ráðgjafar Trumps hafa beðið hann um að fara mjúkum höndum um auðjöfurinn. Erlent 6. júní 2025 10:48
Fyrirsjáanlegar deilur: Valdamesti maður heims og sá ríkasti hnakkrífast Forseti Bandaríkjanna, valdamesti maður heims, og auðugasti maður heims, sem hafa unnið náið saman á undanförnum mánuðum, skutu föstum skotum hvor að öðrum í gær. Hvor á sínum eigin samfélagsmiðli. Donald Trump kallaði Elon Musk meðal annars klikkaðan og Musk sagði að bola ætti Trump úr embætti og stakk upp á því að stofna nýjan stjórnmálaflokk, svo eitthvað sé nefnt. Erlent 6. júní 2025 07:27
Segir nafn Trumps vera í Epstein-skjölunum Elon Musk, fyrrverandi samstarfsfélagi Bandaríkjaforseta, segir nafn forsetans vera í skjölum sem varða rannsókn á auðkýfingnum Jeffrey Epstein. Erlent 5. júní 2025 19:46
Trump segist „mjög vonsvikinn“ út í Elon og ekki viss um að þeir geti átt gott samband Donald Trump Bandaríkjaforseti segist verulega svekktur út í Elon Musk, auðugasta mann heims og einn nánasta samstarfsmann sinn til langs tíma. Gagnrýni hans á fjárlagafrumvarp sem Trump og félagar reyna nú að fá samþykkt virðist hafa fallið í grýttan jarðveg hjá forsetanum. Erlent 5. júní 2025 17:02
Sagður verulega ósáttur við gagnrýni Musks Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður verulega ósáttur við Elon Musk, auðugasta mann heims, og gagnrýni hans á fjárlagafrumvarp sem Trump og leiðtogar Repúblikanaflokksins eru að reyna að koma gegnum þingið. Musk hefur farið hörðum orðum um frumvarpið og sagst ætla að beita sér gegn þeim þingmönnum sem greiða atkvæði með því. Erlent 5. júní 2025 11:35
Bannar nú erlenda nemendur í Harvard á grunni þjóðaröryggis Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, greip aftur til aðgerða gegn Harvard háskólanum í gærkvöldi. Þá meinaði hann skólanum að taka við erlendum nemendum aftur en nokkrir dagar eru síðan dómari kom í veg fyrir síðustu tilraun hans til að koma höggi á háskólann. Erlent 5. júní 2025 10:14
Krefst fimm prósenta til varnarmála: „Allir þurfa að leggja hönd á plóg“ Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins verða að verja fimm prósentum af vergri landsframleiðslu til varnarmála. Þá verður Evrópa og Kanada að hætta að reiða sig á hermátt Bandaríkjanna og standa á eigin fótum. Erlent 5. júní 2025 08:08
Endurvekur ferðabannið Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur endurvakið ferðabann sitt frá 2017 gagnvart íbúum nokkurra múslimalanda, auk nokkurra ríkja til viðbóta. Ríkisborgurum frá alls tólf ríkjum verður meinað ferðast til Bandaríkjanna þegar bannið tekur gildi næsta mánudag og verða tálmar settir í veg íbúa sjö ríkja til viðbótar. Erlent 5. júní 2025 06:34
Birtir þrisvar sinnum fleiri færslur en áður Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur aldrei verið virkari á samfélagsmiðlum en nú. Á fyrstu 132 dögum hans í starfi skrifaði birti hann 2.262 færslur á síðu sinni á Truth Social, hans eigin samfélagsmiðli. Það eru rúmlega sautján færslur á dag og rúmlega þrefalt fleiri færslur en hann birti á Twitter á sama tímabili á hans fyrra kjörtímabili. Erlent 4. júní 2025 12:53
Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Forsvarsmenn bílaframleiðenda og annarra fyrirtækja víðsvegar um heiminn vara við því að bílaframleiðsla gæti stöðvast vegna skorts á sérstökum seglum, sem eru nánast eingöngu framleiddir í Kína. Verksmiðjum gæti verið lokað víða um heim á næstu vikum felli Kínverjar ekki niður tálma á útflutningi þessara segla og sjaldgæfra málma sem notaðir eru við framleiðslu þeirra. Viðskipti erlent 4. júní 2025 10:21
Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps Elon Musk, auðugasti maður heims, sem staðið hefur dyggilega við bak Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, segir hið „stóra og fallega“ fjárlagafrumvarp sem Trump vill að Repúblikanar samþykki sé „viðurstyggilegur hryllingur“. Hann segir alla þá sem hafa stutt það eiga að skammast sín. Erlent 4. júní 2025 07:24
Tollar á ál og stál hækka Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur tvöfaldað almenna tolla á innflutning stáls og áls til Bandaríkjanna. Hann segir fyrri tolla ekki hafa gert nóg til að vernda bandarískan iðnað og hefur því hækkað tollana í fimmtíu prósent, úr 25 prósentum. Viðskipti erlent 4. júní 2025 06:48
Mun þingið fara fram hjá Trump? Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sagðist í gær styðja hertar refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu. Áhugi fyrir slíkum aðgerðum er mikill í þinginu og þá sérstaklega í öldungadeildinni en hingað til hefur Donald Trump, forseti, ekki viljað taka það skref. Erlent 3. júní 2025 12:55
Yfirmaður FEMA sagðist ekki vita af tilvist fellibyljatímabila Forsvarsmenn Almannavarna Bandaríkjanna (FEMA) hafa ákveðið að hætta við að nota nýja viðbragðsáætlun við fellibyljum sem ku hafa verið langt á veg komin. Þess í stað ætla þeir að nota áætlunina frá því í fyrra en nýr yfirmaður stofnunarinnar kom starfsmönnum sínum í opna skjöldu í gær þegar hann sagðist ekki vita af tilvist fellibyljatímabila. Erlent 3. júní 2025 11:28
Með sömu óásættanlegu kröfurnar Rússneskir erindrekar lögðu í gær fram sömu umfangsmiklu kröfurnar til Úkraínumanna og þeir hafa gert áður. Þessar kröfur hafa Úkraínumenn áður sagt vera óásættanlegar þar sem þær geri ríkið berskjaldað gegn annarri innrás og að Úkraína verði í raun leppríki Rússlands. Um uppgjöf væri að ræða. Erlent 3. júní 2025 07:22
Vilja ganga á milli bols og höfuðs á geimrannsóknum í Bandaríkjunum Athuganastöðin sem greindi þyngdarbylgjur í fyrsta skipti verður lömuð og fjöldi þekktra rannsóknarleiðangra í sólkerfinu stöðvaðir ef óskir Bandaríkjaforseta um fjárlög næsta árs verða að veruleika. Niðurskurðinum er líkt við útrýmingu vísinda í Bandaríkjunum. Erlent 2. júní 2025 11:58
Áhugi á Bandaríkjareisum snarminnkar Áhugi Íslendinga á ferðalögum til Bandaríkjanna hefur dvínað eftir að Donald Trump sneri aftur í embætti forseta Bandaríkjanna í upphafi árs. Áhuginn hefur dregist mest saman hjá kjósendum Samfylkingar og Viðreisnar. Innlent 2. júní 2025 11:05
Tvöfaldar tolla á innflutt stál og ál Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að Bandaríkin muni tvöfalda tolla á innflutt stál og ál, úr 25 prósent í 50 prósent. Breytingin tekur gildi næsta miðvikudag. Trump greindi frá þessu á baráttufundi í Pittsburgh í Pennsylvaníu. Viðskipti erlent 31. maí 2025 07:56
Ryður leiðina fyrir Trump til að vísa hálfri milljón úr landi Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að Donald Trump, forseti, megi svipta farand- og flóttafólk frá Haítí, Kúbu, Níkaragva og Venesúela tímabundinni vernd gegn brottvísunum sem þau hafa fengið. Þannig má Trump vísa þeim úr landi áður en umsóknir þeirra um dvalarleyfi eru tekin fyrir. Erlent 30. maí 2025 16:24
Vísuðu til rannsókna sem voru ekki til í „heimsklassa“ skýrslu Robert F. Kennnedy yngri, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, gaf á dögunum út skýrslu þar sem farið var hörðum orðum um framleiðslu matvæla í Bandaríkjunum og lyfjamarkað landsins. Skýrslan, sem bar nafnið „Make Amercia Healthy Again“ hefur þó verið harðlega gagnrýnd eftir að í ljós kom að hún vísar í nokkrum tilfellum í rannsóknir sem voru aldrei framkvæmdar. Erlent 30. maí 2025 12:32
Ísrael samþykkir vopnahlé Trumps Fulltrúar Ísrael hafa samþykkt nýjustu tillögu Bandaríkjanna um vopnahlé milli Ísrael og Hamas. Tveir mánuðir er liðnir síðan síðasta vopnahléi lauk með loftárásum Ísraela. Erlent 29. maí 2025 20:14
Störfum Musk lokið hjá DOGE Elon Musk hefur tilkynnt um það að störfum hans hjá DOGE, hagræðingar- og niðurskurðarstofnun Bandaríkjastjórnar, sé lokið. Donald Trump réði Musk til starfa í 130 daga sem sérstakan ráðgjafa um niðurskurð innan stjórnkerfisins. Erlent 29. maí 2025 15:17
Dómstóll ógilti tollahækkanir Trump Dómstóll í Bandaríkjunum hefur komist að þeirri niðurstöðu að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi farið út fyrir valdheimildir sínar þegar hann fyrirskipaði tollahækkanir á fjölmörg ríki fyrr á árinu í skjóli laga um neyðarvald. Viðskipti erlent 29. maí 2025 08:49
Óttast að stefna Trump-stjórnarinnar fæli námsmenn frá Bandaríkjunum Stjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta hefur fyrirskipað öllum sendirráðum landsins að hætta tímabundið að taka við umsóknum námsmanna um vegabréfsáritanir. Forseti Sambands íslenskra námsmanna erlendis hefur áhyggjur af stöðunni og segir alvarlegt að vegið sé að tjáningarfrelsi þeirra sem hyggja á nám í Bandaríkjunum, og hvetur námsmenn sem fundið hafa fyrir áhrifum þessa til að leita til samtakanna og deila reynslu sinni. Innlent 28. maí 2025 13:11