Donald Trump

Donald Trump

Fréttir tengdar 45. og 47. forseta Bandaríkjanna, Donald Trump.

Fréttamynd

Íranir segja við­ræður á lokametrunum

Ráðamenn í Íran segja að samkomulag um framtíðarstjórn Hormússunds sem erindrekar ríkisins hafa unnið að í Óman vera á lokametrunum. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gefið til kynna að samkomulag gæti verið opinberað í þessari viku. Opnun sundsins gæti verið stórt skref í að binda enda á átök Bandaríkjanna og Íran.

Erlent
Fréttamynd

Vísa máli Fauci til dóm­stóla

Þingnefnd í öldungadeild Bandaríkjaþings hefur vísað máli Anthony Fauci sóttvarnarlæknis til dómstóla, þar sem hann er sakaður um að sýna þinginu vanvirðingu eftir að hann neitaði að svara spurningum í yfirheyrslu þar sem viðbrögð hans við Covid-19 heimsfaraldrinum voru til umfjöllunar.

Erlent
Fréttamynd

Sakar lekamenn um land­ráð vegna „rangra“ frétta

Donald Trump segir ekkert til í fréttum af tómum hillum í vopnabúrum Bandaríkjanna vegna stríðsins gegn Íran. Í sama mund segir hann að verið sé að elta uppi heimildarmenn fjölmiðla sem hafa sagt frá hinum meinta skorti. Þeim verði refsað fyrir að leka yfirlýsingum sem Trump setur til jafns við landráð.

Erlent
Fréttamynd

Tómar hillur í vopnabúrum Banda­ríkjanna

Bandaríkjamenn hafa gengið verulega á birgðir af ýmsum nútímavopnum vegna átakanna við Íran. Þetta á sérstaklega við langdræg og nákvæm vopn eins og ATACM-eldflaugar og Tomahawk-stýriflaugar. Einnig hafa forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna áhyggjur af því hve mörg flugskeyti í loftvarnarkerfi hafa verið notuð í stríðinu.

Erlent
Fréttamynd

Al­gjör­lega varnar­lausir gegn skotflaugum Rússa

Rússar skutu 24 skotflaugum, fjórum annars konar eldflaugum og 115 sjálfsprengidrónum að Kænugarði og úthverfum borgarinnar í nótt. Úkraínumenn segjast hafa skotið 98 dróna niður en ekki einustu eldflaug en að minnsta kosti sautján létu lífið í árásinni og tugir eru særðir. Úkraínumenn virðast búnir með flugskeyti sín í einu loftvarnarkerfin sem þeir eiga sem geta verið notuð til að skjóta niður rússneskar skotflaugar.

Erlent
Fréttamynd

Greiða leið fyrir Blanche að em­bætti dóms­mála­ráð­herra

Todd Blanche, starfandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, gekk í dag skrefinu nær því að fá starfið að fullu. Tilnefning hans til embættisins var samþykkt úr dómsmálanefnd öldungadeildarinnar en atkvæðagreiðslan fór 12-10 og fylgdi alfarið flokkslínum. Tilnefningin hefur um nokkuð skeið verið strand í nefndinni vegna andstöðu tveggja þingmanna Repúblikanaflokksins.

Erlent
Fréttamynd

„Hún féll saman eins og regn­hlíf“

Donald Trump er ósáttur við að Jeanine Pirro, starfandi ríkissaksóknari Washington DC, hafi „guggnað“ og fellt niður ákærur gegn manni sem sakaður var um skemmdarverk á lauginni við Lincoln-minnismerkið í Washington DC. Forsetinn segir að sjónvarpskonan fyrrverandi og núverandi saksóknari hafi „fallið saman eins og regnhlíf“.

Erlent
Fréttamynd

Við­ræður við Íran hefjist á morgun

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir viðræður við Íran um að binda enda á stríðið í Persaflóa munu hefjast á morgun, mánudag. Þær munu líklega fara fram í gegnum milliliði.

Erlent
Fréttamynd

Níu felldir í Kænu­garði

Rússar gerðu í nótt umfangsmikla árás á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu. Níu fórust og 33 voru særðir, að sögn yfirvalda í Úkraínu. 

Erlent
Fréttamynd

„Það sem hann gerði, ég get aldrei endur­goldið það“

Sextán ára strandvörður í Kaliforníu hefur verið hylltur sem hetja fyrir að bjarga tíu ára dreng úr gífurlegu brimróti um síðustu helgi. Donald Trump segist vilja bjóða táningnum í Hvíta húsið og heiðra hann eftir að myndband af björguninni fór í dreifingu á netinu.

Erlent
Fréttamynd

„Við ætlum að fokking lúskra á þeim“

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að árásum Írana á bandaríska hermenn í Jórdaníu í nótt verði svarað af mikilli hörku. Bandaríkjamenn svöruðu árásum Írana með árásum á írakskar sveitir sem sæta skipunum klerkastjórnarinnar í Teheran en Trump segir þær árásir hafa verið gerðar í samráði við yfirvöld í Bagdad.

Erlent
Fréttamynd

Ræddu Patriot-flaugar og friðar­við­ræður

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segist hafa átt góðan fund með kollega sínum Donald Trump í Hvíta húsinu í dag. Þeir hafi meðal annars talað um mögulega framleiðslu flugskeyta í Patriot-loftvarnarkerfi í Úkraínu, mögulegar friðarviðræður og hvernig þeir gætu varið líf Úkraínumanna.

Erlent
Fréttamynd

Safna fjár­magni með múrmeldýrum á OnlyFans

Hópur vísindamanna við UCLA-háskóla ákvað að stofna Onlyfans-síðu til að safna fjármagni fyrir rannsóknir í kjölfar mikils niðurskurðar til vísindastarfs í Bandaríkjunum. Á síðunni er ekki að finna myndefni af mannfólki heldur múrmeldýrum.

Lífið
Fréttamynd

Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólu­setningum

Donald Trump spurði Robert Kennedy yngri, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, að því í vor af hverju hann væri ekki að gera meira til að kanna tenginguna milli bólusetninga barna og einhverfu. Forsetinn sakaði ráðherrann sinn um aðgerðakvíða.

Erlent
Fréttamynd

Vilja að Hæsti­réttur taki af­stöðu

Stjórnvöld vestanhafs hafa farið fram á að Hæstiréttur Bandaríkjanna ógildi dóm alríkisdómstóls, sem aftur ógilti forsetatilskipun um takmarkanir á utankjörfundaratkvæðagreiðslum.

Erlent
Fréttamynd

Ráð­gjafar á­hyggju­fullir og Trump gerði hlé á á­rásum

Bandaríkjamenn gerðu engar árásir á Íran í nótt, eftir tæplega tvær vikur af daglegum árásum. Donald Trump, forseti, hefur íhugað að auka umfang árása gegn Íran enn frekar en JD Vance, varaforseti, Dan Caine, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, og aðrir ráðgjafar forsetans eru sagðir hafa lýst yfir áhyggjum vegna þeirra ætlana.

Erlent
Fréttamynd

Vilja refsi­að­gerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kín­verja

Hópur bandarískra þingmanna hefur farið fram á við ríkisstjórn Donalds Trump að refsiaðgerðum verði beitt til að reyna að stöðva umfangsmiklar og oft ólöglegar veiðar Kínverja sem kallaðar eru „vistmorð“. Peningar sem áttu að fara í eftirlit með þessum veiðum fóru í allt annað.

Erlent
Fréttamynd

Vopna­fram­leið­endur reyna að koma til móts við Evrópu

Forsvarsmenn bandarískra hergagnaframleiðenda mættu áhyggjum þegar þeir mættu á flugsýningu í Farnborough í Bretlandi í vikunni. Þar lýstu evrópskir viðskiptavinir ítrekað yfir áhyggjum af því að reiða of mikið á Bandaríkjamenn þegar kemur að hergögnum og framleiðslu þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Viður­kenndu mis­tök og drógu stefnur gegn blaða­mönnum til baka

Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur dregið til baka stefnur gegn blaðamönnum New York Times og fjölskyldumeðlimum þeirra vegna fréttaflutnings miðilsins um nýju forsetaflugvélina sem Donald Trump fékk gefins frá konungsfjölskyldu Katar. Alríkisdómari hafði skömmu áður gengið hart fram gegn lögmönnum ráðuneytisins varðandi það hvernig staðið hefði verið að stefnunum og sagði það illa gert.

Erlent
Fréttamynd

Hótar Hútum vegna á­rása á flutninga­skip

Donald Trump segir að ef Hútar haldi áfram árásum á olíuflutningaskip á Rauðahafi muni hann draga bæði Írani og Húta til ábyrgðar. Árásir verði gerðar á bæði ríki. Forsetinn bandaríski segist verulega vonsvikinn með leiðtoga Húta, sem hafi hagað sér skynsamlega hingað til vegna stríðs Bandaríkjamanna gegn Íran.

Erlent