Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, hjólar í Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra fyrir að kalla Donald Trump „heillandi“ í viðtali í dag. Framkoma Þorgerðar sé niðurlægjandi fyrir konur og alla sem láta sig mannréttindi varða. Innlent 25.6.2025 20:35
Segist funda með ráðamönnum Íran í næstu viku Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að fulltrúar Bandaríkjanna og Íran muni hittast í næstu viku og hefja viðræður um mögulegan kjarnorkusamning. Hann segir þó skipta litlu máli hvort samkomulag náist þar sem þegar væri búið að eyðileggja kjarnorkuáætlun Íran. Erlent 25.6.2025 20:13
Trump íhugar að láta Úkraínumenn fá fleiri Patriot-kerfi Donald Trump Bandaríkjaforseti segist íhuga að láta Úkraínumenn fá fleiri háþróuð loftvarnarkerfi af gerðinni Patriot. Samt er óljóst hvort hann vilji selja þeim hergögnin eða gefa þau. Erlent 25.6.2025 19:16
Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega Erlent 25.6.2025 06:54
Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Íranar létu yfirvöld í Bandaríkjunum og Katar vita af sér áður en þeir létu til skarar skríða og skutu eldflaugum í átt að bandarísksri herstöð í Katar í dag. Donald Trump Bandaríkjaforseti þakkar þeim fyrir og segir að engan hafi sakað í árásinni. Erlent 23. júní 2025 22:12
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Donald Trump Bandaríkjanna hefur brugðist ókvæða við gagnrýni flokksbróður síns og birt langan pistil á samfélagsmiðli sínum þar sem hann sparar ekki stóru orðin. Hann kallar hann aumingja, latan, athyglissjúkan og afkastalítinn meðal annarra níðyrða. Erlent 22. júní 2025 21:24
Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Bandaríkjaher gerði árásir á þrjár kjarnorkurannsóknarstöðvar Íran í gærkvöldi. Rúm vika er síðan Ísraelsher hóf umfangsmiklar loftárásir á Íran og síðan hafa herir landanna beggja hafa gert loftárásir á víxl. Erlent 22. júní 2025 09:26
Bandaríkjamenn gera loftárásir á Írani Bandaríkjamenn hafa gert loftárásir á þrjár kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran. Þeirra á meðal neðanjarðarmiðstöðina til í Fordó til auðgunar úrans sem er grafin áttatíu metrum undir fjalli. Erlent 22. júní 2025 00:01
Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Ísraelskri embættismenn hafa tjáð Bandaríkjastjórn að þeir hyggist ekki bíða í tvær vikur til að gefa Írönum færi á að komast að samkomulagi við Bandaríkjamenn. Spennan hefur aukist hægt og þétt undanfarna daga en Trump Bandaríkjaforseti hefur ekki gefið út hvort hann geri beinar árásir á Íran. Erlent 21. júní 2025 21:03
Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Fulltrúar Pakistans hafa ákveðið að tilnefna Donald Trump Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels fyrir störf hans í þágu friðarviðræðna á milli Indlands og Pakistan. Indverjarnir eru ekki eins ánægðir með gjörðir forsetans. Erlent 21. júní 2025 13:22
Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Alríkisdómari í Boston hefur fellt úr gildi ákvörðun ríkisstjórnar Bandaríkjaforseta um að banna Harvard háskólanum að taka við erlendum nemendum. Bannið kom í kjölfar þess að háskólinn neitaði að fylgja skilyrðum sem ríkisstjórnin setti honum. Erlent 21. júní 2025 10:40
Frestar aftur TikTok-banni Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur frestað aftur banni samfélagsmiðilsins TikTok í Bandaríkjunum í níutíu daga. TikTok bannið átti fyrst að taka gildi í janúar. Erlent 19. júní 2025 16:50
Kynnti sér mögulegar árásir: „Að klára verkið þýðir að rústa Fordo“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er þeirrar skoðunar að þörf sé á því að gera kjarnorkurannsóknarstöð Írana í Fordo óvirka. Það þurfi til að koma í veg fyrir að klerkastjórnin í Íran komi sér upp kjarnorkuvopnum. Erlent 19. júní 2025 16:28
Áhlaup ICE og óvissan veldur vandræðum Þegar Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í síðustu viku að útsendarar innflytjendastofnunnar Bandaríkjanna (ICE) og annarra alríkislöggæsluembætta myndu hætta að gera áhlaup á bóndabæi og fyrirtæki í ferðamannabransanum önduðu margir léttar. Margir verkamenn innan geiranna, sem voru í Bandaríkjunum ólöglega, höfðu endað í haldi og enn fleiri neituðu að mæta í vinnu. Erlent 19. júní 2025 15:19
Sagði Khamenei „nútíma Hitler“ og að markmiðið sé að fella hann Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísrael, segir að Ali Khamenei, æðstiklerkur Íran, sé „nútíma Hitler“ og nauðsynlegt sé að bana honum. Þetta sé orðið eitt helsta markmið Ísraela í Íran. Erlent 19. júní 2025 11:51
Leita „fjandskapar“ á samfélagsmiðlum námsmanna Yfirvöld í Bandaríkjunum ætla í framtíðinni að skoða samfélagsmiðla erlendra námsmanna og fræðimanna sem sækja um vegabréfsáritun og dvalarleyfi í Bandaríkjunum. Markmiðið er að leita að fjandskap í garð Bandaríkjanna. Erlent 19. júní 2025 10:00
Vandræðaleg heimsókn til Trump í Hvíta Húsið: „Kæmist kona í ykkar lið?“ Leikmenn og starfsmenn ítalska fótboltafélagsins Juventus var boðið í heimsókn í Hvíta húsið í Washington DC en upp kom frekar kjánaleg stund í boði Bandaríkjaforseta. Fótbolti 19. júní 2025 06:32
Vill ekki í stríð en segir klerkastjórnina ekki mega eignast kjarnorkuvopn Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagðist ekki hafa tekið ákvörðun um það hvort hann ætlaði að gera árásir á kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran. Hann sagðist ekki vilja í stríð við Íran en sagði að þegar valið stæði milli þess að berjast eða leyfa klerkastjórninni í Íran að eignast kjarnorkuvopn yrði maður „að gera það sem maður þarf að gera“. Erlent 18. júní 2025 22:01
Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Hópur Íslendinga hefur óskað eftir aðstoð stjórnvalda við að komast frá Íran og Ísrael. Bandaríkjaforseti gefur óljós svör um hvort hann blandi sér í deiluna. Innlent 18. júní 2025 19:01
Fjórtán tonna sprengjan sem Ísraela vantar Ráðamenn í Ísrael hafa um nokkuð skeið reynt að fá Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, til að aðstoða við árásir á Íran. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, er sagður hafa tvisvar sinnum beðið Trump persónulega um að fá aðstoð í formi fjórtán tonna sprengju sem hönnuð er til að granda byrgjum sem grafin eru djúpt í jörðu. Erlent 18. júní 2025 16:15
„Kannski geri ég það, kannski geri ég það ekki“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin kannski munu skerast í leikinn í átökum Írana og Ísraela, þrátt fyrir að Íranir hafi hótað „óbætanlegu tjóni“ ef þau gerðu það. Forsetinn segist hafa gefið Írönum úrslitakost, eða raunar „úrslita-úrslitakost“. Erlent 18. júní 2025 15:21
Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn Æðstiklerkur Íran segir að landið ætli ekki að gefast upp og hótar Bandaríkjunum með „óbætanlegu tjóni“ ef þau hlutast til í átökum Ísraelsmanna og Írana. Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins varar við því að „allsherjarstríð“ geti brotist út. Erlent 18. júní 2025 11:50
Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Bandaríska sendiráðinu í Ísrael í Jerúsalem verður lokað frá og með miðvikudeginum að minnsta kosti fram að föstudegi. Bandarísk yfirvöld hafa sagt starfsfólki og fjölskyldum þeirr að leita skjóls. Erlent 18. júní 2025 00:10
Trump fundar með þjóðaröryggisráði Donald Trump situr nú fund með þjóðaröryggisráði Bandaríkjanna en þar eru málefni Ísraels og Írans á dagskrá. Erlent 17. júní 2025 19:52
Segist vita hvar klerkurinn feli sig en vilji ekki drepa hann strax Bandaríkjaforseti virðist ýja að því að Bandaríkjaher sé að blanda sér í átök milli Ísraels og Íran. Hann segir að „við“ vitum hvar æðstiklerkur Írana feli sig en vilji ekki drepa hann að svo stöddu. Hann krefst „skilyrðirslausrar uppgjafar“. Erlent 17. júní 2025 17:07