Ísland í dag - Ingibjörg segir sérstakt te slá á sykurlöngunina.

Athafnakonan flotta Ingibjörg Þorvaldsdóttir hefur verið áberandi undanfarin ár og meðal annars rekið vinsælar fataverslanir og veitingahús og nú er hún að reka einn vinsælasta heilsu veitingastað landsins Pure Deli. Hún hefur rekið sig harkalega á vegna gríðarlegs vinnuálags en hefur verið dugleg að finna leiðir til að slá á streitu og kvíða og svo drekkur hún sérstakt te á kvöldin sem hreinlega slær á sykurlöngunina. Ingibjörg borðar helst ekki seinna en kl.6.00 á kvöldin. Og svo hefur hún fundið ýmsa heimsþekkta aðila sem hún fylgist með á netinu og sækir þangað leiðbeiningar og hugmyndir og svo les hún einnig bækur sem hjálpa við að halda henni á heilsubrautinni bæði andlega og líkamlega. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og skoðaði hvaða leiðir Ingibjörg hefur fundið til að gera lífið auðveldara og betra.

483
13:23

Vinsælt í flokknum Ísland í dag