Leikjanámskeið býður upp á ný tækifæri
Börnum með skerta hreyfigetu er boðið upp á að prófa ýmsa leiki sem þau hafa kannski aldrei fengið tækifæri til að taka þátt í, í nýju tilraunaverkefni hjá ÍR. Verkefnastjóri segir of fá úrræði fyrir börn með hreyfihömlun á sumrin sem sitji of oft á hakanum á meðan önnur börn sækja námskeið.