Janosch er allur Magnús Jochum Pálsson skrifar 4. nóvember 2026 15:19 Rithöfundurinn Janosch er látinn. Getty Rithöfundurinn og myndhöfundurinn Horst Eckhart, betur þekktur sem Janosch, lést friðsællega á heimili sínu í Tenerife, 95 ára að aldri. Janosch skrifaði meira en 150 barnabækur, margar hverjar um litla tígrisdýrið, litla björninn og tígrisöndina, sem hafa verið þýddar á yfir þrjátíu tungumál, þar á meðal íslensku.
Janosch hóf rithöfundarferilinn í byrjun sjöunda áratugarins, sló í gegn á áttunda áratugnum og var gríðarlega afkastamikill í barnabókaskrifum. Barnabókin Oh, wie schön ist Panama seldist svo vel að velgengnin gerði Janosch kleift að flytja til Tenerife á Kanaríeyjum árið 1980 þar sem hann hefur búið síðan. Guðrún Kvaran þýddi bókina á íslensku árið 1982 undir titlinum Ferðin til Panama: sagan um það þegar litla tígrísdýrið og litli björninn fóru til Panama. Útgefandinn Bernhard Feil, sem gaf út mörg verka Janosch, greindi frá andláti höfundarins í tilkynningu í dag en þar segir að höfundurinn hafi dáið friðsællega á heimili sínu á Tenerife. Barinn í æsku og rekinn úr listnámi Horst Eckert fæddist 11. mars 1931 í borginni Hindenburg í Efri-Slesíu í Þýskalandi (sem heitir í dag Zabrze og er hluti af Póllandi). Eftir Seinni heimsstyrjöldina þurfti fjölskylda hans að flýja Þýskaland. Eckert byrjaði í listnámi við Listaháskólann í München og hugsaði með sér að það yrði auðvelt að verða listamaður. Honum var hins vegar vikið úr náminu eftir nokkrar annir vegna „skorts á hæfileikum“. Hann gafst þó ekki upp, hélt áfram að vinna sem sjálfstætt starfandi listamaður, tók upp höfundarnafnið Janosch og uppgötvaði rithæfileika sína. Ferðin til Panama er vinsælasta bók Janoschar. Janosch gaf út Valek, sína fyrstu barnabók, árið 1960. Það markaði upphafið að áratugalöngum höfundarferli sem samanstóð af rúmlega 150 bókum. Þrátt fyrir að hafa aðallega skrifað barnabækur þá skrifaði Janosch einnig bækur um fullorðna sem fjölluðu um æskuár hans. Þrátt fyrir að hafa skrifað skemmtilegar bækur fyrir börn þá átti Janosch sjálfur ömurlega æsku og ólst upp á ströngu kaþólsku heimili. Faðir hans var drykkjuraftur og var Janosch barinn af báðum foreldrum sínum og ömmu. Áföllin í æsku urðu síðar til þess að Janosch leitaði sjálfur í áfengið líkt og faðir hans forðum. Persónur Janoschar eru jafnan miklir prakkar sem standa í ýmsum uppátækjum, ljúga jafnvel hver að annarri og koma illa fram við vini sína. Vinskapur og bræðralag hafa þó alltaf betur að lokum. Meðal persóna hans má nefna heiðarlega ljónið hans, litla tígrisdýrið og litla björninn og svo tígrisöndinn, rondótt gul og svört viðarönd á hjólum. Janosch skrifaði einnig vikulega pistla í blaðið Die Seit á árunum 2013 til 2019 þar sem hann skrifaði um heimsmálin sem karakterinn Herra Wondrak. Skömmu fyrir níutíu ára afmæli Janosch árið 2021 voru þessir pistlar gefnir út í bók.
Andlát Þýskaland Bókmenntir Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið Craig hafi átt hugmyndina að því að drepa hana Bíó og sjónvarp „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Janosch er allur Menning Alsæla á Akranesi Tónlist „Götustelpan“ glöð Lífið Fleiri fréttir Janosch er allur Góðir straumar á Straumi Fjórðungur ekki með bókasafnskort Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Hlátrasköll hjá heitum hönnuðum Hlýtur Vigdísarverðlaunin 2026 Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Í fyrsta sinn utan Úkraínu Ragnheiður Harpa hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Hilmir Snær svarar gagnrýnendum „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Tímamót hjá Árna Má Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Stella í orlofi á stóra sviðið Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sjá meira