„Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2026 08:31 Sveindís Jane Jónsdóttir á fullri ferð með íslenska landsliðinu. Vísir/Diego Íslenska knattspyrnukonan Sveindís Jane Jónsdóttir endaði deildarkeppnina í NWSL-deildinni með marki og stoðsendingu í sigri í lokaleiknum og kórónaði með því besta tímabil sem íslenskur leikmaður hefur átt í þessari öflugu bandarísku atvinnumannadeild.
Frammistaða íslenska framherjans hefur ekki farið fram hjá neinum sem fylgjast með deildinni. Hún setti ekki aðeins íslenskt markamet í deildinni með tíu mörkum heldur einnig félagsmet hjá Angel City. Meðal þeirra sem hrósa Suðurnesjamærinni er Versus-miðillinn sem henti í lofræðu um þessa 25 ára knattspyrnukonu. View this post on Instagram A post shared by Angel City FC (@weareangelcity) „Sveindís Jónsdóttir. Hneigðu þig. Eitt og hálft ár með Angel City og SJ hefur svo sannarlega unnið sér inn vængina. Tíu mörk. Fjórar stoðsendingar. Leiddi liðið sitt í sóknartölfræði,“ byrjaði pistillinn. „Gerði varnarmönnum lífið leitt í leiðinni. Hélt stuðningsmönnum Angel City í sjöunda himni allt árið. Það besta sem Ísland á. Engin furða að hún sé svalasti skotmaðurinn,“ segir í pistlinum og svo var haldið áfram: „Var í þrjú ár að fara á kostum í Wolfsburg. Því kemur ekki á óvart að hún sé með alvöru keppnisskap. Varnarmenn fóru með bænir og óskuðu sér í hvert sinn sem þeir mættu englunum. Kom til La-La-Lands og er nú vel á veg komin með að tryggja liði sínu Hollywood-endi.“ Næst á dagskrá er úrslitakeppnin þar sem Angel City mætir Kansas City Current í hreinum úrslitaleik um sæti í undanúrslitunum. Leikurinn fer fram sunnudaginn 7. nóvember næstkomandi. View this post on Instagram A post shared by VERSUS (@versus)
Bandaríski fótboltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Fleiri fréttir Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Sjá meira