Formúla 1

„Eyði­lagður“ yfir sögu­legum titli ítalska ungstirnisins

Aron Guðmundsson skrifar
George Russell óskar hér Kimi Antonelli til hamingju eftir að sá síðarnefndi hafði tryggt sér heimsmeistaratitil ökuþóra í Formúlu 1. Sá yngsti í sögunni til að ná þeim áfanga.
George Russell óskar hér Kimi Antonelli til hamingju eftir að sá síðarnefndi hafði tryggt sér heimsmeistaratitil ökuþóra í Formúlu 1. Sá yngsti í sögunni til að ná þeim áfanga. Vísir/Getty

George Russell, ökuþór Formúlu 1-liðs Mercedes, var að sögn liðsstjóra liðsins eyðilagður eftir að liðsfélagi hans, ungstirnið Kimi Antonelli, varð í gær yngsti heimsmeistari sögunnar í mótaröðinni.

Russell, sem hefur lengi verið á höttunum eftir heimsmeistaratitli og var fyrir tímabilið litið á að væri aðalökuþór Mercedes liðsins, þurfti að bíta í það súra að sjá meistaratitilinn enda hjá Antonelli á aðeins hans öðru tímabili í mótaröðinni.

Bretinn óskaði Antonelli til hamingju skömmu eftir keppni mótaraðarinnar í Mexíkó í gær þar sem að Ítalinn tryggði sér heimsmeistaratitilinn og varð um leið yngsti heimsmeistari sögunnar.

Russell mætti hins vegar ekki í viðtöl eftir keppni og braut þar með reglur Formúlu 1. Mercedes var því sektað um það sem nemur „sex hundruð þúsund íslenskum krónum“ en Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes, tjáði sig um fjarveru Bretans í viðtölum.

„Hann er eyðilagður yfir þessu,“ sagði Wolff við fjölmiðla og hefur það tekið á Russell að láta í minni pokann fyrir Antonelli. „Hann sýndi hins vegar mikla íþróttamennsku er hann fór og óskaði Antonelli til hamingju.“

Toto og Russell hafa unnið lengi saman hjá Mercedes.

„Ég hef þekkt hann svo lengi. Þegar ég sá hann eftir keppni hugsaði ég með mér að þetta væri skelfilegt augnablik fyrir hann sem kappakstursökuþór.“

Hann sýnir því skilning að Russell hafi ekki viljað ræða við fjölmiðla eftir keppni. Bretinn kom sér fljótt í burtu af brautarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×