Viðskipti innlent

Ráðinn for­stjóri Elkem á Ís­landi

Atli Ísleifsson skrifar
Örvar Sveinsson.
Örvar Sveinsson. ELkem

Örvar Sveinsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Elkem á Íslandi.

Í tilkynningu segir að Örvar hafi áður starfað hjá Elkem í átta ár og snúi nú aftur til fyrirtækisins eftir að hafa undanfarin ár stýrt framleiðslustarfsemi hjá Össuri, alþjóðlegu fyrirtæki sem þróar nýstárlegar lausnir á sviði stoð- og stuðningstækja.

Örvar tekur til starfa þann 12. nóvember næstkomandi en hann tekur við af Birki Guðmundarsyni, sem hafi gegnt hlutverki forstjóra tímabundið síðustu mánuði.

Í tilkynningunni er haft eftir Örvari að hann hlakki mikið til að taka við starfi forstjóra Elkem á Íslandi. „Eftir að hafa starfað hjá Elkem í átta ár fyrr á starfsferlinum þekki ég fyrirtækið og reksturinn vel. Þar starfar öflugur hópur fólks með mikla reynslu og þekkingu.

Nýr raforkusamningur til ársins 2039 er stórt og mikilvægt skref fyrir Elkem á Íslandi. Hann skapar aukinn fyrirsjáanleika og traustari grunn fyrir framtíð rekstursins.

Undanfarin ár hjá Össuri hef ég öðlast dýrmæta reynslu af því að leiða stóra og fjölbreytta framleiðslustarfsemi innan alþjóðlegs fyrirtækis. Ég hlakka til að nýta þá reynslu og vinna með öflugu teymi Elkem að áframhaldandi þróun starfseminnar á Grundartanga og þeim tækifærum sem fram undan eru,“ segir Örvar Sveinsson, nýráðinn forstjóri Elkem á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×