Körfubolti

Sjáðu slags­málin í Síkinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jordan Semple sést hér halda utan um höfuð Dee Bost rétt áður en hann snéri hann niður í gólfið.
Jordan Semple sést hér halda utan um höfuð Dee Bost rétt áður en hann snéri hann niður í gólfið. Sýn Sport

Það sauð heldur betur upp úr í toppslag Tindastóls og Álftaness í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld. Bæði lið voru taplaus fyrir leikinn og ekkert var gefið eftir í þessum hitaleik.

Dee Bost, leikmanni Stólanna, og Jordan Semple, leikmanni Álftaness, lenti saman í fjórða leikhluta sem endaði með því að báðir fengu óíþróttamannslega villu, svokallaða háskavillu.

Dee Bost var rekinn út úr húsi af því að hann hafði áður fengið tæknivillu hjá dómurum leiksins.

Semple fékk aftur á móti að halda áfram leik.

Tindastóll var sex stigum yfir í leiknum þegar slagsmálin urðu og um fimm mínútur til leiksloka.

Hér fyrir neðan má sjá atvikið en Rikki G og Helgi Már Magnússon voru að lýsa leiknum í kvöld.

Klippa: Slagsmál í Síkinu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×