Lífið

Patrick Stewart látinn

Eiður Þór Árnason skrifar
Patrick Stewart árið 2024.
Patrick Stewart árið 2024. Getty/Michael Tullberg

Enski leikarinn Patrick Stewart er látinn, 86 ára að aldri. Hann átti glæstan feril á sviði og í kvikmyndum en verður helst minnst fyrir hlutverk sín sem Jean-Luc Picard skipherra í Star Trek: The Next Generation og prófessor Charles Xavier í X-Men-myndunum. Hann lést á heimili sínu í Los Angeles á miðvikudag.

Variety greinir frá en samkvæmt yfirlýsingu á Instagram-reikningi hans háði Stewart „stutta“ baráttu við Alzheimer-sjúkdóminn og Lewy-sjúkdóm áður en hann lést en sá síðarnefndi er einnig heilahrörnunarsjúkdómur. 

„Hans hljómmikla rödd og einstakir hæfileikar verða samofin ógleymanlegum túlkunum hans að eilífu á öllum sviðum,“ segir í yfirlýsingu frá aðstandendum.

„Afrek hans í starfi héldust í hendur við góðgerðarstarf hans og baráttu fyrir mannréttindum, þolendum heimilisofbeldis, alþjóðlegum hælisleitendum, geðheilbrigðisþjónustu fyrir uppgjafahermenn og velferð dýra,“

„Í stað blóma er þeim sem vilja minnast hans bent á Johns Hopkins Alzheimer’s Disease Research Center Fund og Alzheimer’s Foundation of America Caregiver Resources,“ segir jafnframt í Instagram-færslu.

Fréttin er í vinnslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.