HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Sindri Sverrisson skrifar 28. október 2026 18:02 Arnar Freyr Arnarsson naut stuðnings afa síns úr stúkunni á mörgum stórmótum, ekki bara með A-landsliðinu heldur einnig með yngri landsliðum. vísir/Vilhelm Handknattleikssamband Íslands minnist Sævars Þórs Sigurgeirssonar á miðlum sínum en þessi gallharði stuðningsmaður strákanna okkar lést þann 12. október síðastliðinn.
Sævar var afi Arnars Freys Arnarssonar og studdi því sérstaklega við línumanninn öfluga en einnig við alla strákana okkar. „Það er skarð fyrir skildi í stúkunni. Frá árinu 2015 fylgdi Sævar Þór Sigurgeirsson íslensku landsliðunum í handbolta á stórmót, bæði yngri landsliðunum og A-landsliðinu. Hann var löngu orðinn fastur og kær hluti af þeim hópi sem fylgir liðunum okkar út í heim,“ segir í kveðju á Facebook-síðu HSÍ þar sem Sævars er minnst. Þar segir að Sævar, sem var frá Skeggjastöðum í Miðfirði, hafi byrjað á að fylgja Arnari á mót með yngri landsliðum og haldið því áfram þegar Arnar var kominn í A-landsliðið. „Fáir hafa fylgt ferli eins leikmanns jafn dyggilega og Sævar fylgdi ferli Arnars. Stoltið leyndi sér aldrei, en stuðningur hans náði til alls liðsins.“ Útför Sævars fer fram frá Háteigskirkju á morgun, fimmtudag, klukkan 13. „Handboltahreyfingin á Íslandi þakkar Sævari tryggðina og stuðninginn í gegnum árin. Við sendum Arnari Frey og allri fjölskyldu Sævars innilegar samúðarkveðjur,“ segir í kveðju HSÍ. Næsta stórmót strákanna okkar er heimsmeistaramótið í Þýskalandi í janúar næstkomandi. Þar byrjar Ísland á leik við Barein 15. janúar í Magdeburg og mætir svo Japan og Norður-Makedóníu áður en keppni í milliriðlum tekur við í Hannover.
Landslið karla í handbolta Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Fleiri fréttir KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Sjá meira