Færsluóður miðaldra höfundur: „Þetta er Mark Zuckerberg að kenna“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 22. október 2026 12:15 Gunnar Helgason ætlaði að deila myndböndum með vinum sínum á Facebook en endaði á að senda þau á hinar ýmsu íbúagrúppur, margar hverjar sem hann tilheyrir ekki einu sinni sjálfur. Gunnar Helgason er á rannsóknarferðalagi um Wales fyrir nýjan furðusagnaflokk sinn og hefur deilt myndböndum af vettvangi á Facebook. Deilingarstillingar miðilsins hafa strítt höfundinum og færslurnar ratað í ýmsar óviðkomandi grúppur, svo sem íbúahóp Grafarholts og Úlfarsárdals. Höfundurinn kann engar skýringar á málinu og kennir Mark Zuckerberg um klúðrið.
Íbúar í Grafarholti og Úlfarsárdal veltu því sennilega margir fyrir sér í gærkvöldi hvers vegna Gunnar Helgason, barnabókahöfundur og leikari, deildi með þeim myndböndum af Caerphilly-kastala í Suður-Wales og tveimur risavöxnum gervidrekum. Gunnar hefur aldrei búið í hverfinu og innihaldið algjörlega óviðkomandi hverfinu. Íbúarnir ráku svo eflaust upp stór augu í morgun þegar Gunnar birti í hópnum afmæliskveðju til sonar síns, Ásgríms Gunnarssonar, í tilefni af 34 ára afmæli hans. Blaðamaður heyrði hljóðið í Gunnari, sem var á akstursferðalagi um Bretlandseyjar, til að forvitnast um þessar óvenjulegu færslur. „Jesús kristur, ég sá þetta í morgun,“ sagði Gunnar og hló tryllingslega þegar blaðamaður bar færslurnar í íbúagrúppunni undir höfund. Er þetta ný leið til að ná til lesenda eða miðaldra klúður? „Þetta er Mark Zuckerberg að kenna. Ég bað ekki um að þetta færi þarna inn. Ég er búinn að setja inn nokkur myndbönd frá Wales svo sá ég í morgun að þau höfðu ekki bara farið inn í íbúagrúppu Grafarholts heldur líka Prjónara í Seláshverfi og grúppur sem ég er ekki einu sinni meðlimur í,“ segir Gunnar. „Ég skil þetta ekki en þetta er örugglega miðaldraklúður ef ég þekki sjálfan mig rétt.“ „Þetta er ógeðslega vandræðalegt“ Gunnar birti allar þrjár færslurnar á vegg sínum en dreifði þeim um leið víðar. Þannig rötuðu myndböndin til íbúa Grafarholts og Úlfarsárdals og inn í grúppurnar Auglýsingatafla Bolungarvíkur og nágrennis, Íslendingar í Odense og Viðburðir í Þingeyjarsveit og nágrenni. Þetta var sem sagt ekki með ráðum gert? „Þetta er djúphugsuð markaðsherferð fyrir næstu bók,“ sagði Gunnar þá glettinn og bætti við hlæjandi: „Ég gekk í allar grúppur landsins og sendi svo á þær allar.“ Það er skemmtilegt að sjá svona persónulega afmæliskveðju á svona opinberri íbúagrúppu. „Kom afmæliskveðjan þar líka?“ sagði Gunnar undrandi. Myndin sem fylgdi kveðjunni af hjónunum Gunna og Björk, syni þeirra Ásgrími og eiginkonu hans Sabrinu. „Ég var búinn að sjá að myndböndin höfðu dottið þarna inn en ekki afmæliskveðjan. Ég sendi hana reyndar og keyrði bara af stað. Hvernig stendur á þessu? Kenndu mér þetta. Af hverju er þetta?“ „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur enda aldrei búið á þessum svæðum. Djöfull er þetta fyndið,“ bætir hann við. Kannski er Zuckerberg svona mikill aðdáandi? „Hann vill hafa þetta sem víðast, hann er svo ánægður með þessa nýju bók.“ Þetta er helvíti skemmtilegt. „Þetta er alls ekki helvíti skemmtilegt, þetta er ógeðslega vandræðalegt,“ segir Gunnar. Breyti öllu að fara á staðinn Blaðamanni lék forvitni á að vita hvers vegna Gunnar væri einn á ferðalagi um Wales. Ástæðan fyrir því er að hann vinnur nú að þríleiknum Sturlu, furðusagnabókaflokki sem gerist í fantasíuheimi framtíðarinnar og fjallar um tvíburana Regínu og Litlavin. „Ég ákvað að leggja þetta á mig því ég er að skrifa bókaflokk sem gerist í Wales,“ segir Gunnar um ferðalagið og bætir við að hann sé þegar búinn að ferðast um Normandí, Færeyjar og England. „En ég átti Wales svolítið eftir fyrir þriðju bókina í bókaflokknum. Fyrsta bókin, Sturla - Tvíburaveiðar, kemur út núna fyrir jól og önnur bókin er langt komin, ekki nema hálft ár eftir af vinnu fyrir hana,“ segir hann. „Það breytir svo rosalega miklu að fara á staðinn, heyra einhverjar þjóðsögur og fróðleik um landið. Svo er ég með fulla ferðatösku af bókum um Wales,“ segir Gunnar sem er nýkominn frá þorpinu Hay-on-Wye sem er bókabær landsins og „bókahöfuðborg heimsins“ eins og Gunnar orðar það. „Þetta er þorp, bara hundrað hús og 25 bókabúðir, samt hefur þeim fækkað mikið,“ segir hann. Erfitt fyrir tvíbura að vera einn á flakki Gunnar segir ferðalagið hafa verið gríðarlega hjálplegt fyrir skrifin. Wales sé ríkt af náttúrufegurð og sagan drjúpi af hverju strái. Staðurinn sé svo einstakur að hann velti fyrir sér hvers vegna Íslendingar hafi ekki farið þangað í meira mæli. „Þetta er alveg einstakt, þvílík náttúrufegurð. Það sama gerðist þegar ég fór til Normandí, sagan lifnar við, bæði mannkynssagan og sagan mín,“ segir hann. Gunnar er þó einn á ferð sem hann segir heldur krefjandi. „Þetta er ógeðslega erfitt fyrir tvíbura, ég var rosaglaður þegar þú hringdir í mig,“ segir hann. Eftir að hafa heimsótt Wales er Gunnar núna kominn til Bretlands sem hann segir að blikni algjörlega í samanburði við nágrannalandið. „Þetta er eins og ævintýraland, hvergi eru jafnmargir kastalar á ferkílómetra og endalausar sögur af drekum. Af hverju ætli það séu drekar í öllum ævintýrum, Harry Potter, Hringadróttinssögu og Krúnuleikunum? Þetta er allt komið frá þjóðsögum í Wales,“ segir Gunnar. Gandálfur og Fróði úr Hringadróttinssögu. „Tolkien nýtti sér það mikið, öll þessi skrítnu álfanöfn eru úr velsku. Hann var ekki bara aðdáandi Íslands og Íslendingasagna heldur líka velskra þjóðsagna. Ég er að feta í fótspor Tolkiens,“ segir hann. Gunnar lýsir þríleiknum sínum sem furðusögu sem gerist í framtíðinni en byggir lauslega á sögulegum atburðum. „Í framtíðinni er Reykjavík horfin, sokkin í haf og Selfoss orðin höfuðborg landsins. Færeyjar eru versti staður á jörðinni og svo gerist það auðvitað í bókinni að önnur söguhetjan endar þar,“ segir hann. Kápa fyrstu bókarinnar í þríleiknum. Gunnar hefur birt þessi tvö fyrrnefndu myndbönd frá Wales til að leyfa fylgjendum sínum og vinum að fylgjast með ferðalaginu. „Ási bróðir sagði að ég ætti að gera það,“ segir Gunnar og vísar þar til tvíburabróður síns, Ásmundar Helgasonar útgefanda. Þannig þetta klúður er honum að kenna? „Þetta er örugglega honum að kenna,“ segir Gunnar. „Kannski þegar ég kemst loksins upp á hótelherbergi þá tek ég þetta út og biðst afsökunar en það eru sex-sjö tímar í það,“ segir hann að lokum.
Bókmenntir Facebook Meta Samfélagsmiðlar Wales Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Sjá meira