Viðskipti innlent

Norður­löndin efla sam­starf sitt í fjár­mála­eftir­liti

Atli Ísleifsson skrifar
Aukið samstarf var samþykkt á fundi stjórnenda fjármálaeftirlita Norðurlandanna í Kaupmannahöfn dagana 27.–28. ágúst 2026 síðastliðinn.
Aukið samstarf var samþykkt á fundi stjórnenda fjármálaeftirlita Norðurlandanna í Kaupmannahöfn dagana 27.–28. ágúst 2026 síðastliðinn. Vísir/Vilhelm

Fjármálaeftirlit Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar hafa ákveðið að auka norrænt samstarf í fjármálaeftirliti. Í sameiginlegri yfirlýsingu lýsa þau yfir vilja til enn markvissara og kerfisbundnara samstarfs en áður.

Frá þessu segir á vef Seðlabankans. Þar kemur fram að markmiðið sé að móta samræmdari norræna nálgun á þeim sviðum þar sem fjármálamarkaðir, starfsemi aðila og áhættuþættir nái í auknum mæli yfir landamæri.

Fram kemur að í fyrstu verði áhersla á tvö verkefni, annars vegar eftirlit með markaðsmisnotkun og hins vegar innleiðingu og framkvæmd nýs regluverks um greiðsluþjónustu.

„Fjármálaeftirlitin einsetja sér að ná árangri á báðum sviðum fyrir næsta fund stjórnenda fjármálaeftirlitanna sem haldinn verður í Stokkhólmi í ágúst 2027.

Fyrir Seðlabanka Íslands er aukið samstarf í fjármálaeftirliti mikilvægur liður í að stuðla að aukinni samræmingu og miðlun þekkingar enda margar áskoranir og áhætta sambærileg þvert á Norðurlönd,“ segir á vef Seðlabankans.

Aukið samstarf var samþykkt á fundi stjórnenda eftirlitanna í Kaupmannahöfn dagana 27.–28. ágúst 2026 síðastliðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×