330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Starri Freyr Jónsson skrifar 26. október 2026 10:51 „Ég held að það sé fyrst og fremst vegna þess að mér hefur alltaf þótt starfið skemmtilegt, en ekki síður fólkið og menningin hjá Creditinfo,“ segir Dagný Blöndal, sérfræðingur í ársreikningum hjá Creditinfo, sem hefur séð íslenskt atvinnulíf taka miklum breytingum og fylgst með þróun fyrirtækja í gegnum ársreikninga þeirra á tæplega þremur áratugum. Anton Brink Dagný Blöndal, sérfræðingur í ársreikningum hjá Creditinfo, hefur fylgst með íslensku atvinnulífi í gegnum ársreikninga fyrirtækja í nær þrjá áratugi. Hún hefur unnið með hundruð þúsunda ársreikninga, upplifað miklar tæknibreytingar og lært að þekkja fyrirtækin af fjárhagsupplýsingum þeirra. Þrátt fyrir annasama daga og krefjandi álagstímabil er áhuginn á starfinu enn sá sami og í upphafi.
Þegar hún hóf störf hjá Creditinfo árið 1998 átti hún upphaflega aðeins að sinna tímabundnu verkefni. Annað kom á daginn og í nóvember verða liðin 28 ár frá því hún gekk til liðs við fyrirtækið, sem þá hafði starfað í tæpt ár. Á þessum tíma hefur Dagný séð íslenskt atvinnulíf taka miklum breytingum og fylgst með þróun fyrirtækja í gegnum ársreikninga þeirra. Starfið hefur einnig tekið stakkaskiptum með tilkomu nýrrar tækni og breyttra vinnubragða. „Ég held að það sé fyrst og fremst vegna þess að mér hefur alltaf þótt starfið skemmtilegt, en ekki síður fólkið og menningin hjá Creditinfo. Það er svo dýrmætt að eiga góða samstarfsfélaga,“ segir Dagný þegar hún er spurð hvað hafi haldið henni í starfi hjá fyrirtækinu allan þennan tíma. Hundruð þúsunda ársreikninga Dagný hefur um árabil verið í lykilhlutverki við vinnslu ársreikninga og umsjón með upplýsingum sem berast í gagnagrunn Creditinfo. Þar er að finna rúmlega 800 þúsund ársreikninga og sjálf hefur hún unnið með yfir 330 þúsund þeirra á starfsferlinum. Á Íslandi eru nú um 52 þúsund félög sem ber að skila ársreikningum og samkvæmt Dagnýju hafa um 89–91% þeirra skilað ársreikningum fyrir árslok undanfarin ár. Mér finnst áhugavert að sjá hvernig fyrirtækjum gengur frá ári til árs. Vinnan krefst bæði þekkingar á reikningsskilum og góðrar yfirsýnar. Í ársreikningunum er meðal annars að finna upplýsingar um rekstur, efnahag, sjóðstreymi, eignarhald og ýmsa aðra þætti sem varpa ljósi á stöðu fyrirtækjanna. „Mér finnst áhugavert að sjá hvernig fyrirtækjum gengur frá ári til árs. Maður sér oft ákveðna þróun þegar maður hefur unnið með gögnin í mörg ár og fer að þekkja félögin vel,“ segir hún. Ársreikningarnir eru jafnframt afar ólíkir, bæði að umfangi og innihaldi. „Sumir eru örfáar blaðsíður en aðrir geta verið um 200 blaðsíður. Það er óhætt að segja að það sé ekki alltaf sami lesturinn!“ Frá pappírsstöflum til stafrænnar vinnslu Tækniframfarir hafa gjörbreytt starfsumhverfi Dagnýjar frá því hún hóf störf. Fyrstu tíu árin vann hún á skrifstofu Ríkisskattstjóra og fyrirtækjaskrár, enda voru ársreikningar þá á pappír og ekki heimilt að fara með þá út úr húsinu. „Guðmundur Guðbjarnarson heitinn kom trillandi með fullan vagn af ársreikningum til mín á hverjum morgni. Við áttum mjög gott samstarf og hann var minn lærifaðir. Hann var endalaust að vitna í ársreikningalögin, útskýra og upplýsa mig um ýmislegt tengt ársreikningum.“ Dagný minnist þess einnig að áður en nettengingar urðu sjálfsagður hluti vinnudagsins þurfti hún að vista gögnin á disklingi og fara með hann á skrifstofu Creditinfo í lok hvers dags. Síðar tóku við rafræn gagnaskipti og aukin sjálfvirkni. Árið 2016 urðu meðal annars tímamót þegar stöðluð rafræn ársreikningsgögn fóru að berast beint frá ríkisskattstjóra inn í kerfi Creditinfo. Ég hlusta á alls konar tónlist og er eiginlega með tónlist í eyrunum allan vinnudaginn. Hún hjálpar mér að komast í gott flæði og einbeita mér að verkefnunum. Þróunin hefur haldið áfram og segir Dagný að tæknibreytingarnar hafi átt stóran þátt í að gera starfið fjölbreytt og áhugavert. Álagstími sem krefst einbeitingar Þótt ársreikningar berist allt árið er álagið langt frá því að vera jafnt. Mesta törnin hefst eftir verslunarmannahelgi og stendur fram undir lok nóvember. Þá skiptir miklu máli að halda einbeitingu og skipuleggja tímann vel. „Ég er alltaf vel stemmd fyrir hvert álagstímabil sem byrjar hægt og rólega eftir verslunarmannahelgi og lýkur í lok nóvember. Ég passa að taka mér gott frí fyrir og eftir törn.“ Á þessum tíma kýs Dagný að vinna að mestu heima við, meðal annars til að nýta tímann sem best og sleppa við umferðina. Vinnudagarnir geta orðið langir og verkefnin fylgja henni jafnvel inn í helgarnar. „Mest krefjandi eru álagstímabilin þegar ég vinn alla daga, virka daga og helgar, og gef mér engan slaka nema kannski einn dag í mánuði.“ Hún segir jafnframt að henni komi enn á óvart hversu mörg fyrirtæki bíði fram á síðustu stundu með að skila ársreikningum. Mikið magn ársreikninga berist á síðasta degi ágústmánaðar og það auki álagið verulega. Nákvæmni og vandvirkni skipta sköpum í starfinu, enda geta jafnvel litlar skekkjur í fjárhagsupplýsingum haft áhrif á úrvinnslu og niðurstöður. „Nákvæmni og vandvirkni eru númer eitt, tvö og tíu,“ segir Dagný og bætir við að jafnaðargeð og þolinmæði séu ekki síður mikilvæg þegar mikið er að gera. Tónlistin hjálpar til við einbeitinguna Þótt tölurnar séu í aðalhlutverki hjá Dagnýju er tónlistin aldrei langt undan. Hún segist hafa mikla ánægju af hvoru tveggja og tónlist sé fastur liður í vinnudeginum. „Ég elska tölur og ég elska tónlist. Ég er alltaf að hlusta á tónlist þegar ég vinn og það eru forréttindi að fá borgað fyrir að hlusta á góða tónlist.“ Tónlistarsmekkurinn er fjölbreyttur og hún heldur sig ekki við neinn sérstakan listamann eða lagalista þegar álagið eykst. „Ég hlusta á alls konar tónlist og er eiginlega með tónlist í eyrunum allan vinnudaginn. Hún hjálpar mér að komast í gott flæði og einbeita mér að verkefnunum. Ég er ekki endilega með einhverja sérstaka tónlist fyrir álagstímann, heldur fer þetta svolítið eftir dagsforminu.“ Dagný hefur einnig alla tíð haft gaman af því að setja sér markmið og keppa við sjálfa sig. Hún segir þennan metnað hafa verið sterkan drifkraft í gegnum árin og að hún leggi sig ávallt fram um að gera sitt besta, sama hversu annasamur dagurinn er. Creditinfo orðið stór hluti af lífinu Þegar Dagný er spurð hvað standi upp úr eftir nær þrjá áratugi hjá sama fyrirtækinu nefnir hún ekki aðeins verkefnin heldur einnig fólkið sem hún hefur kynnst á leiðinni. „Það hefur oft verið sárt að kveðja samstarfsfólk því heilt yfir hef ég verið svo heppin að vinna með einstaklega skemmtilegu og góðu fólki.“ Í sumar tók hún meðal annars þátt í að skipuleggja endurfundi fyrrverandi starfsfólks Creditinfo sem starfaði hjá fyrirtækinu á árunum 2007 til 2015. Hugmyndin kom frá fyrrverandi starfsmanni og fjögurra manna hópur sá um undirbúninginn. „Það var yndislegt að hitta allt þetta fólk aftur og sjá hvað það var gaman hjá öllum. Það er greinilega eitthvað sérstakt við Creditinfo-andann sem fylgir manni áfram.“ Dagný segir að á vinnustaðnum ríki persónulegt andrúmsloft og góður starfsandi. „Mér finnst menningin hjá Creditinfo frábær og andrúmsloftið á skrifstofunni svo gott að manni líður eiginlega eins og maður sé heima hjá sér. Það er gott utanumhald, boðleiðirnar eru stuttar og maður finnur að það er hlustað á mann ef maður vill koma einhverju að.“ Það er greinilega eitthvað sérstakt við Creditinfo-andann sem fylgir manni áfram. Eftir öll þessi ár segist Dagný enn mæta verkefnunum af sama áhuga og í upphafi. Hún hafi fengið tækifæri til að þróast í starfi samhliða breytingum á tækni og vinnubrögðum. „Ég held að þetta sé blanda af krefjandi og gefandi starfi, góðu fólki og frábærum vinnustað. Eftir 28 ár er Creditinfo orðið stór hluti af lífi mínu og ég get alveg sagt að ég hef verið mjög heppin með minn vinnustað.“ Þessi grein er hluti af samstarfi Sýnar og Creditinfo um Framúrskarandi fyrirtæki.
Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fleiri fréttir 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Þungur róður hjá fyrirtækjum en undirstöðurnar sterkar Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Frá löngum gátlista yfir í flennigír og fögnuð Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki „Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Eina vottunin sem sýnir hvaða fyrirtæki skara raunverulega fram úr Sjá meira