Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Sif Sigmarsdóttir skrifar 15. október 2026 07:03 Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi. Vísir Í síðustu viku bárust fréttir af því að gervigreindarfyrirtækið OpenAI hefði fundið lausnir á hundruðum áður óleystra stærðfræðivandamála. Stærðfræðingar súpa hveljur. Hvað eiga þeir nú að aðhafast inni á loftlitlum skrifstofum yfir svörtu kaffi og rúðustrikaðri stílabók?
Gárungar sögðu að um væri að ræða einn stærsta áfanga í tíuþúsund ára sögu stærðfræðinnar. En þótt gervigreind OpenAI svipti stærðfræðinga tilgangi sínum virðist ChatGPT ekki kunna að telja upp að 68. Getur ekki lagt saman tvo og tvo Í vikunni hugðist ég útbúa hvatakerfi fyrir sex ára son minn: Ef hann væri duglegur að gera heimavinnuna sína á hverjum degi fram að jólafríi í skólanum fengi hann verðlaun. Ég bað ChatGPT um að teikna einfalda mynd af 68 stjörnum, sem syninum væri ætlað að lita daglega að heimalærdómi loknum. Fyrsta tilraun vitlíkisins innihélt 65 stjörnur. Sú næsta 69. Þriðja myndin taldi 72. Sama hvað ég reyndi urðu stjörnurnar aldrei 68. Í árdaga ChatGPT hlógu stærðfræðingar dátt að takmörkuðum reiknihæfileikum gervigreindarinnar. Dagblaðið The Wall Street Journal sagði til að mynda frá því snemma árs 2023 að ChatGPT reiknaðist til að 2 x 300 væri 500. Notandi á tæknispjallinu Hacker News hæddist að viðleitninni og sagði ekki um raunverulega gervigreind að ræða heldur „mállíkan sem gæti ekki lagt saman tvo og tvo.“ Gervigreind er þó ekki eina greindin sem leggur ekki alltaf rétt saman tvo og tvo. Hálfsmánaðarlaun millistjórnanda Hið árlega jólabókaflóð geysist nú fram. Oft liggur margra ára vinna að baki afurða sem enda á náttborðum og í jólapökkum landsmanna. Ávinningur fyrir rithöfunda er þó oft litlu meiri en hálfsmánaðarlaun millistjórnanda. Það svíður því sérstaklega sárt þegar stórfyrirtæki á borð við OpenAI, sem þróar spjallmennið ChatGPT og veltir milljörðum bandaríkjadala, notar stolin sjóræningjaeintök af bókum rithöfunda til að búa til sína eigin afurð. Rithöfundar um heim allan krefjast þess nú að þeim verði greidd afnotagjöld séu verk þeirra notuð til að þjálfa gervigreind. Auðvitað ætti OpenAI að greiða mér fyrir afnot af höfundavörðum texta sem ég skrifa, rétt eins og ég greiði OpenAI fyrir afnot af ChatGPT til að föndra stjörnukort handa syni mínum. Reiknisdæmið er þó flóknara en það lítur út í fyrstu. Varla eini Íslendingurinn Gervigreind virðist farin að geta leyst flóknar stærðfræðiþrautir. Íslenskufærni hennar jafnast hins vegar á við færni hennar í að telja upp á 68: Viðleitnin er aðdáunarverð en niðurstöðunni er ábótavant. Ég efast um að ég sé eini Íslendingurinn sem kýs að eiga samskipti við spjallmenni á ensku frekar en að ráða fram úr bjagaðri íslensku sem hljómar oft eins og verulega illa þýddur texti úr öðru tungumáli. Í síðustu viku kom út skýrsla starfshóps sem leggja átti mat á nálgun íslenskra stjórnvalda í málefnum gervigreindar. Skýrslan er efnismikil og vönduð en þar er klykkt út með orðunum: „Næstu skref eru stjórnvalda.“ Kannski að næstu skref séu þó á ábyrgð fleiri en stjórnvalda. Í skýrslunni er sú hugmynd viðruð að stór tæknifyrirtæki greiði sérstakt gjald fyrir afnot af höfundarréttarvörðu efni við þjálfun gervigreindar, sem ríkið sjái um að koma til rétthafa. Sam Altman er forstjóri OpenAI. Virði fyrirtækisins er sagt nálgast eina billjón bandaríkjadala.Ap Þótt dæmi séu um að gervigreindarfyrirtæki geri samninga við einstaka útgefendur um afnot af efni eru enn sem komið engin fordæmi um að slík starfsemi falli undir lögbundið gjaldtökukerfi. Jafnframt halda fyrirtæki á borð við OpenAI því fram að þjálfun gervigreindar með efni sem aðgengilegt er á netinu falli undir bandarískar reglur um „fair use“, eða sanngjarna notkun, og krefjist því hvorki leyfis né endurgjalds. Kurteisir skýrsluhöfundar Gervigreind ryður sér til rúms á flestum sviðum mannlífsins. Tali hún ekki almennilega íslensku er hætt við að enn fjari undan tungumálinu. Tveir plús tveir eru fjórir. En hvernig reiknum við út virði íslenskrar tungu? Tregða tæknifyrirtækja við að greiða fyrir afnot efnis við þjálfun gervigreindar gæti leitt til þess að þau slepptu heldur að leggja rækt við íslenskuna en að semja um afnotagjald við íslenska leyfishafa. Eftirfarandi er spurning, sem höfundar fyrrnefndrar skýrslu voru sennilega of kurteisir til að spyrja: Verða íslenskir rithöfundar og aðrir sem vinna með íslenskt mál ekki einfaldlega að sætta sig við áframhaldandi „stuld“ tæknifyrirtækja á verkum þeirra til þess að tryggja að íslenskan verði ekki undir í gervigreindarbyltingunni?
Samhengið með Sif Gervigreind Börn og uppeldi Íslensk tunga Bókmenntir Jól Höfundar- og hugverkaréttur Skattar, tollar og gjöld Tengdar fréttir Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Árið er 1973. Matvælaverð í Bandaríkjunum fer óðum hækkandi. Richard Nixon bregst við með ríkisstuðningi við landbúnað. Bændur eru hvattir til að rækta eins mikinn maís og pláss leyfir – eða „frá einni girðingu að þeirri næstu“ eins og landbúnaðarráðherra hans orðar það. Ívilnunin dregur hins vegar dilk á eftir sér. 8. október 2026 07:01 Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Eiginmaður minn fór á pöbbinn nýverið til að horfa á fótboltaleik. Svo að hann sæi á sjónvarpsskjáinn þurfti hann að horfa til hliðar allt kvöldið. Liðið hans vann. Hann hefur hins vegar ekki getað snúið höfðinu fram síðan. 1. október 2026 07:02 Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Mary Maloney beið þess með eftirvæntingu að eiginmaður hennar kæmi heim úr vinnunni. Hún var komin sex mánuði á leið af fyrsta barni og naut þess að stjana við manninn sinn. 24. september 2026 07:03 Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Ég keypti mér nýverið stóran dall af fæðubótarefninu kreatíni – ég hafði heyrt að það væri miðaldra konum allra meina bót. Þegar efnið fór að valda mér óþægindum í maga gerði ég það sem hvaða heilvita manneskja hefði gert: Ég fór aftur í búðina og keypti dall af ennþá dýrara kreatíni. 17. september 2026 07:02 Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Skóli barnanna hófst loks í vikunni hér í London þar sem ég bý. Að vanda kem ég undan sumrinu full af sjálfsfyrirlitningu. Guð hvað börnin mín hljóta að vera fegin að komast í skólann eftir að hafa þurft að þola mig í sjö vikur. 10. september 2026 07:02 Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Margt er hægt að kaupa fyrir peninga: Flottan bíl, nuddpott, þjóðaratkvæðagreiðslu ... Greiðendur húsnæðislána gerðu sér margir vonir um að kaupa eitthvað fínt fyrir peninginn sem yrði afgangs af ráðstöfunartekjunum þegar Ísland gengi í Evrópusambandið og tæki upp evru. Eftir nýliðna þjóðaratkvæðagreiðslu sjá þeir hins vegar fram á að búa við núverandi ofurvexti um aldir alda. 3. september 2026 07:03 Hvað hafa þau að fela? „Helvíti er annað fólk,“ er haft eftir persónu í leikriti franska heimspekingsins Jean-Paul Sartre. 28. maí 2026 07:02 Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Þjálfari enska fótboltaliðsins Arsenal var gagnrýndur fyrir að fagna of ákaft sigri á spænska liðinu Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í byrjun mánaðar – Arsenal var ekki búið að vinna bikarinn. 21. maí 2026 07:02 Bíður þetta böl lands og þjóðar? Síðastliðinn laugardag stukku sex breskir fallhlífahermenn úr flugvél yfir Suður-Atlantshafinu. Gjörgæsluhjúkrunarfræðingur var bundinn við einn þeirra, svæfingarlæknir við annan. 14. maí 2026 07:01 Tapaði ellefu milljónum David Attenborough verður hundrað ára á morgun. Attenborough er dáður um heim allan fyrir náttúrulífsþætti sína. Minnstu munaði hins vegar að veröldin yrði af hæfileikum hans. 7. maí 2026 07:00 Stór brjóst eru stór Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti. 30. apríl 2026 07:00 Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Þegar ég fullyrti við breskan vin minn að Ísland væri spilltasta ríki Norðurlanda skellihló hann. Honum fannst lítið til áþjánar landsmanna koma og sagði: „Að vera spilltasta ríkið á Norðurlöndum er eins og að vera lauslátasta nunnan í klaustrinu.“ 23. apríl 2026 07:00 Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hverjum þykir sinn fugl fagur. Að sama skapi virðist hverri kynslóð finnast eigin mótunarár hafa verið hápunktur vestrænnar siðmenningar. 16. apríl 2026 07:02 Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Það hafði verið fróm ósk barnanna að við færum á frumsýningu nýju Super Mario myndarinnar í páskafríinu. Þar sem ég gekk út úr bíósal í London og hugsaði „hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað“ barst mér tilkynning í símann. Kvikmyndagagnrýnandi dagblaðsins The Times hafði birt harðorðan dóm um myndina. Kallaði hann verkið innantóma markaðssetningarælu sem sýndi hversu undirseld hórdómi vinsældanna við værum orðin. Gaf hann myndinni núll stjörnur. 9. apríl 2026 07:00 Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Á páskum fagna því væntanlega ýmsir að Guð hafi gefið son sinn eingetinn, svo að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Þeir eru þó sennilega fleiri sem fagna því að fá frí í vinnunni, þar sem lífið virðist oft sannarlega eilíft. 2. apríl 2026 07:02 Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga: Hann er góður landafræðikennari. Þótt gáfulegir stjórnmálaskýrendur tali eins og þeir hafi fæðst með vitneskjuna um hvar Hormús-sund er að finna á korti, höfðu fæst okkar heyrt af þessari lífæð nútímans fyrr en í síðasta mánuði – þar með talinn Trump sjálfur, af atburðum síðustu vikna að dæma. 26. mars 2026 07:01 Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu. 19. mars 2026 07:02 Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Fyrrverandi sjónvarpsmaðurinn, Pete Hegseth, sem nú fer með hlutverk varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tjáði sig glaðhlakkalegur á fréttamannafundi í síðustu viku um stríðsaðgerðir Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Sagði hann Írani búna að vera – eða eins og upptendraður unglingur sem spilaði tölvuleiki með vinum sínum í stofunni hjá mömmu sinni myndi orða það eftir aðeins of margar dósir af Pepsi Max: Hann sagði að þeir væru „toast“. 12. mars 2026 07:00 Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? Árið 2002 heyrði Andrew Norfolk, blaðamaður málefna Norður-Englands hjá The Times, orðróm um skipulagða misnotkun á ungum hvítum stúlkum af hálfu karlmanna af pakistönskum uppruna. Kvað þingkona í Yorkshire sjö mæður af svæðinu hafa sagt menn sitja um dætur þeirra, misnota þær kynferðislega og láta þær ganga á milli manna sem þeim var sagt að sofa hjá. 5. mars 2026 07:01 Klósettferðin sem getur bjargað þér frá því að brenna út í vinnunni Að skrifa þessa pistla er stundum eins og að vera með harðlífi. Sama hvað ég rembist við að kreista fram hugmyndir koma þær ekki. Það verður því að teljast gráglettið, að fátt losar hraðar um ritstífluna en að þurfa að standa upp til að fara á klósettið. 26. febrúar 2026 07:03 Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Sagt er að hláturinn lengi lífið. Skotinn Michael Mcfeat mun hins vegar hugsa sig tvisvar um áður en hann segir brandara aftur. 19. febrúar 2026 07:00 Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni Samkvæmt samfélagsmiðlanotanda í Garðabæ þorir fólk varla lengur út af heimilum sínum í London vegna yfirgangs glæpalýðs og innflytjenda. Ég leit af Twitter og út um gluggann heima hjá mér þar sem ég bý í London. Allt virtist með kyrrum kjörum. En hvað var þetta? Gat verið að þarna færi maður sem murkaði lífið úr svani og lagði hann sér svo til munns? 12. febrúar 2026 07:01 Drengurinn sem dó Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir. 5. febrúar 2026 07:01 Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Klukkan var að ganga ellefu. Eins og metnaðarfullum sjálfstætt starfandi blaðamanni er lagið sat ég enn á náttfötunum í sófanum heima hjá mér og horfði á það besta sem sjónvarpsútsendingar um hábjartan dag hafa upp á að bjóða. 29. janúar 2026 07:00 Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Ég sat skömmustuleg við eldhúsborðið og skrollaði á Facebook yfir afgöngum af jólakonfekti – þar fór súkkulaði- og samfélagsmiðlabindindi janúarmánaðar fyrir bí – þegar mér svelgdist skyndilega á. 22. janúar 2026 07:01 Mest lesið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Lífið Fleiri fréttir Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Sjá meira
Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Árið er 1973. Matvælaverð í Bandaríkjunum fer óðum hækkandi. Richard Nixon bregst við með ríkisstuðningi við landbúnað. Bændur eru hvattir til að rækta eins mikinn maís og pláss leyfir – eða „frá einni girðingu að þeirri næstu“ eins og landbúnaðarráðherra hans orðar það. Ívilnunin dregur hins vegar dilk á eftir sér. 8. október 2026 07:01
Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Eiginmaður minn fór á pöbbinn nýverið til að horfa á fótboltaleik. Svo að hann sæi á sjónvarpsskjáinn þurfti hann að horfa til hliðar allt kvöldið. Liðið hans vann. Hann hefur hins vegar ekki getað snúið höfðinu fram síðan. 1. október 2026 07:02
Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Mary Maloney beið þess með eftirvæntingu að eiginmaður hennar kæmi heim úr vinnunni. Hún var komin sex mánuði á leið af fyrsta barni og naut þess að stjana við manninn sinn. 24. september 2026 07:03
Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Ég keypti mér nýverið stóran dall af fæðubótarefninu kreatíni – ég hafði heyrt að það væri miðaldra konum allra meina bót. Þegar efnið fór að valda mér óþægindum í maga gerði ég það sem hvaða heilvita manneskja hefði gert: Ég fór aftur í búðina og keypti dall af ennþá dýrara kreatíni. 17. september 2026 07:02
Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Skóli barnanna hófst loks í vikunni hér í London þar sem ég bý. Að vanda kem ég undan sumrinu full af sjálfsfyrirlitningu. Guð hvað börnin mín hljóta að vera fegin að komast í skólann eftir að hafa þurft að þola mig í sjö vikur. 10. september 2026 07:02
Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Margt er hægt að kaupa fyrir peninga: Flottan bíl, nuddpott, þjóðaratkvæðagreiðslu ... Greiðendur húsnæðislána gerðu sér margir vonir um að kaupa eitthvað fínt fyrir peninginn sem yrði afgangs af ráðstöfunartekjunum þegar Ísland gengi í Evrópusambandið og tæki upp evru. Eftir nýliðna þjóðaratkvæðagreiðslu sjá þeir hins vegar fram á að búa við núverandi ofurvexti um aldir alda. 3. september 2026 07:03
Hvað hafa þau að fela? „Helvíti er annað fólk,“ er haft eftir persónu í leikriti franska heimspekingsins Jean-Paul Sartre. 28. maí 2026 07:02
Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Þjálfari enska fótboltaliðsins Arsenal var gagnrýndur fyrir að fagna of ákaft sigri á spænska liðinu Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í byrjun mánaðar – Arsenal var ekki búið að vinna bikarinn. 21. maí 2026 07:02
Bíður þetta böl lands og þjóðar? Síðastliðinn laugardag stukku sex breskir fallhlífahermenn úr flugvél yfir Suður-Atlantshafinu. Gjörgæsluhjúkrunarfræðingur var bundinn við einn þeirra, svæfingarlæknir við annan. 14. maí 2026 07:01
Tapaði ellefu milljónum David Attenborough verður hundrað ára á morgun. Attenborough er dáður um heim allan fyrir náttúrulífsþætti sína. Minnstu munaði hins vegar að veröldin yrði af hæfileikum hans. 7. maí 2026 07:00
Stór brjóst eru stór Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti. 30. apríl 2026 07:00
Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Þegar ég fullyrti við breskan vin minn að Ísland væri spilltasta ríki Norðurlanda skellihló hann. Honum fannst lítið til áþjánar landsmanna koma og sagði: „Að vera spilltasta ríkið á Norðurlöndum er eins og að vera lauslátasta nunnan í klaustrinu.“ 23. apríl 2026 07:00
Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hverjum þykir sinn fugl fagur. Að sama skapi virðist hverri kynslóð finnast eigin mótunarár hafa verið hápunktur vestrænnar siðmenningar. 16. apríl 2026 07:02
Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Það hafði verið fróm ósk barnanna að við færum á frumsýningu nýju Super Mario myndarinnar í páskafríinu. Þar sem ég gekk út úr bíósal í London og hugsaði „hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað“ barst mér tilkynning í símann. Kvikmyndagagnrýnandi dagblaðsins The Times hafði birt harðorðan dóm um myndina. Kallaði hann verkið innantóma markaðssetningarælu sem sýndi hversu undirseld hórdómi vinsældanna við værum orðin. Gaf hann myndinni núll stjörnur. 9. apríl 2026 07:00
Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Á páskum fagna því væntanlega ýmsir að Guð hafi gefið son sinn eingetinn, svo að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Þeir eru þó sennilega fleiri sem fagna því að fá frí í vinnunni, þar sem lífið virðist oft sannarlega eilíft. 2. apríl 2026 07:02
Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga: Hann er góður landafræðikennari. Þótt gáfulegir stjórnmálaskýrendur tali eins og þeir hafi fæðst með vitneskjuna um hvar Hormús-sund er að finna á korti, höfðu fæst okkar heyrt af þessari lífæð nútímans fyrr en í síðasta mánuði – þar með talinn Trump sjálfur, af atburðum síðustu vikna að dæma. 26. mars 2026 07:01
Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu. 19. mars 2026 07:02
Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Fyrrverandi sjónvarpsmaðurinn, Pete Hegseth, sem nú fer með hlutverk varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tjáði sig glaðhlakkalegur á fréttamannafundi í síðustu viku um stríðsaðgerðir Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Sagði hann Írani búna að vera – eða eins og upptendraður unglingur sem spilaði tölvuleiki með vinum sínum í stofunni hjá mömmu sinni myndi orða það eftir aðeins of margar dósir af Pepsi Max: Hann sagði að þeir væru „toast“. 12. mars 2026 07:00
Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? Árið 2002 heyrði Andrew Norfolk, blaðamaður málefna Norður-Englands hjá The Times, orðróm um skipulagða misnotkun á ungum hvítum stúlkum af hálfu karlmanna af pakistönskum uppruna. Kvað þingkona í Yorkshire sjö mæður af svæðinu hafa sagt menn sitja um dætur þeirra, misnota þær kynferðislega og láta þær ganga á milli manna sem þeim var sagt að sofa hjá. 5. mars 2026 07:01
Klósettferðin sem getur bjargað þér frá því að brenna út í vinnunni Að skrifa þessa pistla er stundum eins og að vera með harðlífi. Sama hvað ég rembist við að kreista fram hugmyndir koma þær ekki. Það verður því að teljast gráglettið, að fátt losar hraðar um ritstífluna en að þurfa að standa upp til að fara á klósettið. 26. febrúar 2026 07:03
Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Sagt er að hláturinn lengi lífið. Skotinn Michael Mcfeat mun hins vegar hugsa sig tvisvar um áður en hann segir brandara aftur. 19. febrúar 2026 07:00
Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni Samkvæmt samfélagsmiðlanotanda í Garðabæ þorir fólk varla lengur út af heimilum sínum í London vegna yfirgangs glæpalýðs og innflytjenda. Ég leit af Twitter og út um gluggann heima hjá mér þar sem ég bý í London. Allt virtist með kyrrum kjörum. En hvað var þetta? Gat verið að þarna færi maður sem murkaði lífið úr svani og lagði hann sér svo til munns? 12. febrúar 2026 07:01
Drengurinn sem dó Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir. 5. febrúar 2026 07:01
Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Klukkan var að ganga ellefu. Eins og metnaðarfullum sjálfstætt starfandi blaðamanni er lagið sat ég enn á náttfötunum í sófanum heima hjá mér og horfði á það besta sem sjónvarpsútsendingar um hábjartan dag hafa upp á að bjóða. 29. janúar 2026 07:00
Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Ég sat skömmustuleg við eldhúsborðið og skrollaði á Facebook yfir afgöngum af jólakonfekti – þar fór súkkulaði- og samfélagsmiðlabindindi janúarmánaðar fyrir bí – þegar mér svelgdist skyndilega á. 22. janúar 2026 07:01