Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Aron Guðmundsson skrifar 9. október 2026 22:15 Rui Pinto, á myndinni vinstra megin, kom upp um umtalsverð brot Manchester City á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Á myndinni til hægri má sjá núverandi stjórnarformann Manchester City með fyrrverandi knattspyrnustjóra liðsins, Pep Guardiola Vísir/Samsett Uppljóstrarinn Rui Pinto, maðurinn á bakvið vefsíðuna Football Leaks sem lak meðal annars gögnum sem komu upp um brot Manchester City á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar, fær áframhaldandi öryggisvernd í Portúgal.
Það er The Guardian sem greinir frá en yfirvöld í Portúgal hafa komist að þeirri niðurstöðu að gefa Pinto tækifæri til þess að renna stoðum undir þá skoðun sína að hann þurfi á öryggisvernd að halda. Í síðustu viku, í ítarlegri færslu á samfélagsmiðlinum X, sagði Rui Pinto frá því að án fyrirvara væri búið að afturkalla öryggisvernd sem hann hafði notið frá því árið 2020. Athygli vakti að ákvörðun um að afturkalla þá öryggisvernd kom stuttu eftir að dómur yfir Manchester City hafði verið staðfestur. „Vegna stöðunnar sem upp er komin á ég engra annarra kosta völ en að flytja á óþekktan stað innan fárra daga og það um óákveðinn tíma vegna þeirra fjölmörgu líflátshótana sem ég hef fengið og þeirrar alvarlegu hættu á morðtilræði gegn mér,“ skrifaði Pinto í færslu sinni. Öryggisvernd Pinto átti að ljúka á morgun en nú mun hann fá tíu daga til þess að undirbúa málsvörn og freista þess að fá áframhaldandi öryggisvernd.
Enski boltinn Fjármál Manchester City til rannsóknar Portúgal Mest lesið Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur Körfubolti Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Fótbolti Uppgjörið: Njarðvík - Tindastóll 77-85 | Vinna í deildum Evrópu og hér heima Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Reikna með Kane en vita ekki hvenær Körfubolti Fleiri fréttir Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Sjá meira