Körfubolti

„Annars er mér bara fokking drullusama“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Viðar Örn Hafsteinsson fer yfir málin með sínum mönnum í leik kvöldsins.
Viðar Örn Hafsteinsson fer yfir málin með sínum mönnum í leik kvöldsins. Vísir/Diego

„Við vorum bara ekki nógu góðir,“ sagði Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, eftir stórt tap hans manna gegn Álftanesi í 1. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld.

Hattarmenn fengu skell strax í 1. umferð og máttu þola 34 stiga tap gegn Álftnesingum í kvöld.

„Það var mikið af töpuðum boltum. Við komumst ekki inn í hlutina og látum ýta okkur út úr því sem við ætluðum að gera. Munurinn er bara í töpuðum boltum og layup-um sem við erum að gefa þeim.“

Eftir fínan fyrsta leikhluta misstu Hattarmenn Álftnesinga vel fram úr sér í öðrum leikhluta, áður en liðið kom varla stigi á töfluna í þeim þriðja nema af vítalínunni.

„Það var í öðrum leikhluta sem munurinn kemur upp og við erum slakir. Svo erum við bara ekkert í takti og erum hægir og ekki nógu ákveðnir eða skynsamir í því sem við ætlum að gera. Þegar þetta er bara eitthvað einn á einn og ekkert flæði þá fer þetta svona. Við verðum bara að læra af því.“

Aðspurður að því hvort hann sæi eitthvað jákvætt úr þessum leik sem hann gæti tekið með sér lét Viðar ekki standa á svörum.

„Ég ætla að fara að fá mér hamborgara, annars er mér bara fokking drullusama.“

Þá sagðist hann ekki hafa nokkurn áhuga á því að velta fyrir sér næsta leik liðsins, sem er gegn Stjörnunni þann 16. október.

„Hvað, heldurðu að þetta sé einhver heimsendir hvað við þurfum að laga? Við höldum bara áfram að vinna í okkar leik eins og öll lið gera á milli leikja. Þetta er ekki flókið. Ég nenni ekki að hugsa um Stjörnuna fyrr en bara á morgun. Þú getur bara hringt í mig á morgun ef þú vilt tala um það,“ sagði Viðar að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×