Sport

Djús en ekki bjór

Valur Páll Eiríksson skrifar
Juszczyk þóttist drekka djús en ekki bjór.
Juszczyk þóttist drekka djús en ekki bjór. Getty

Fyrirhugaðri sekt Kyle Juszczyk, leikmanns San Francisco 49ers í NFL-deildinni, vegna ósmekkleks fagns hefur verið aflétt.

Juszczyk fagnaði í tvígang á meðan leik 49ers við Miami Dolphins stóð þann 23 september síðastliðinn líkt og hann væri að drekka drykk. NFL-deildin leit á það sem svo að Juszczyk væri að líkja eftir bjórdrykkju og kærði hann til aganefndar deildarinnar.

Sú sammæltist deildinni og sektaði kappann um 14,926 bandaríkjadali fyrir fagnið. Juszczyk útskýrði fagnið hins vegar sem svo að „hann hafi verið að drekka úr djúsfernu en ekki bjór“. Í því samhengi er viðurnefni Juszczyk djúsinn, eða Juice.

Enn fremur benti hann á hræsni NFL-deildarinnar að sekta leikmenn fyrir að segja fögn er viðkoma bjórdrykkju fara yfir strikið, í ljósi þess að NFL er með stóran styrktarsamning við Bud Light og auglýsir þann bjór ítrekað í kringum leiki í deildinni.

Með rökunum fékk Juzszcyk banninu ekki aðeins aflétt heldur sendi deildin enn fremur frá sér yfirlýsingu þar sem sagði að hvers kyns fögn leikmanna sem viðkæmu látbragði við að drekka drykki yrðu hér eftir ekki refsihæf.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×