Sport

Dag­skráin í dag: Geta bætt upp fyrir leikinn á Laugar­dals­velli

Andri Broddason skrifar
Ísland getur bætt upp fyrir svekkjandi jafntefli gegn Eistlandi fyrir rúmri viku.
Ísland getur bætt upp fyrir svekkjandi jafntefli gegn Eistlandi fyrir rúmri viku. Anton/Vísir

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir Eistlandi í Þjóðadeildinni í dag þar sem liðið getur bætt upp fyrir svekkjandi jafntefli við liðið á Laugardalsvelli. Liðið virðist vera að spila betur eftir tvo sigurleiki síðan.

Hitað verður upp fyrir leikinn klukkan 18:00 en leikurinn hefst klukkan 18:45 í beinni útsendingu á Sýn Sport. Eftir leikinn munu svo sérfræðingar fara yfir allt það helsta sem gerðist í leiknum og hvað er fram undan hjá íslenska liðinu.

Fyrir þá sem hafa ekki þolinmæði til þess að bíða eftir A-landsliðinu okkar þá mætir U21 landslið karla Færeyjum á útivelli. Sá leikur er sýndur á Sýn Sport 2 og hefst útsending klukkan 16:50.

Fyrir utan íslensku liðin eru fleiri leikir í Þjóðadeildinni í dag og eru tveir þeirra sýndir á Sýn Sport Viaplay. Leikur Kasakstan gegn Færeyjum verður sýndur klukkan 13:50 og leikur Englands og Tékklands verður sýndur klukkan 18:35.

Fyrir þá sem hafa ekki áhuga á fótbolta eru þrír leikir á dagskrá í Bónus deild kvenna. Leikur Stjörnunnar og Ármanns er sýndur klukkan 18:20 á Sýn Sport Ísland 3, leikur Grindavíkur og Hauka er sýndur klukkan 19:05 á Sýn Sport Ísland og svo er Reykjavíkurslagur þar sem Valur tekur á móti KR á Sýn Sport Ísland 2 klukkan 19:05.

Lokasóknin verður svo á sínum stað þar sem sérfræðingar Sýnar Sport munu fara yfir allt það helsta sem gerðist í NFL-deildinni í vikunni. Deildin fer spennandi af stað og fer að skýrast hvaða lið ætla að gera sig líkleg til að komast í úrslitakeppnina í ár. Þátturinn er sýndur á Sýn Sport klukkan 21:20.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×