Fótbolti

Mark­vörður Eista meiddur

Valur Páll Eiríksson skrifar
Hein er markvörður Werder Bremen í þýsku úrvalsdeildinni. Hann er haldinn til Þýskalands vegna meiðsla.
Hein er markvörður Werder Bremen í þýsku úrvalsdeildinni. Hann er haldinn til Þýskalands vegna meiðsla. Getty

Karl Hein, markvörður eistneska landsliðsins og Werder Bremen í Þýskalandi, mun ekki spila leik liðsins við Ísland í Tallinn í Þjóðadeildinni annað kvöld.

Hein var í marki eistneska liðsins í 1-1 jafntefli á Laugardalsvelli á laugardag fyrir rúmri viku. Hann meiddist hins vegar í vikunni og var ekki með eistneska liðinu í 1-0 sigri liðsins á Lúxemborg um helgina.

Matvei Igonen, markvörður Degerfors í Svíþjóð, stóð þar milli stanganna og hélt hreinu. Fastlega er búist við því að hann verji áfram mark Eista gegn Íslandi annað kvöld.

Varnarmaðurinn Karol Mets missir einnig af leik morgundagsins en hann tekur út leikbann, rétt eins og Mikael Egill Ellertsson í íslenska liðinu.

Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson mun sitja fyrir svörum á blaðamannafundi í Tallinn klukkan 14:15 í dag og fundurinn verður sýndur beint á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×