Erlent

Dæmd í Dan­mörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Sum Pokémon-spil eru verðmætari en önnur.
Sum Pokémon-spil eru verðmætari en önnur. EPA/SEBASTIEN NOGIER

Tveir Danir hafa verið dæmd fyrir að hafa stolið Pokémon-spilum að verðmæti 132 þúsund danskra króna, eða því sem nemur 2,4 milljónum íslenskra króna. Dönsk lögregla segir þjófnað á verðmætum Pokémon-spilum hafa færst í vöxt og biðla til eigenda að passa upp á dótið sitt.

Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins kemur fram að um hafi verið að ræða karl og konu á vesturhluta Sjálands. Konan var dæmd fyrir að hafa selt spilin og þar með svikið fé út úr verslun í bænum Ringsted. Þau hlutu annars vegar sextíu daga og hinsvegar fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Pokémon-spilin sem um ræðir eru komin aftur til eiganda síns. Hann hafði tilkynnt að þeim hefði verið stolið. Fram kemur í frétt DR að glæpamenn hafi í sívaxandi mæli haft augastað á slíkum spilum þar sem vinsældir þeirra og verðmæti hafi aukist gríðarlega á síðustu árum.

Vegna verðmætisins hvetur dönsk lögregla eigendur þeirra til þess að sýna varkárni, meðal annars á samfélagsmiðlum. Glæpamenn fylgist með spjallsvæðum á netinu og geti látið til skarar skríða ef þeir komast á snoðir um dýr Pokémon-spil. Lögregluþjónn líkir spilunum við skartgripi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×