Sport

Ís­lenska lands­liðið í bakgarðshlaupum klárt

Aron Guðmundsson skrifar
Þorleifur Þorleifsson, Mari Jarsk og Þórdís Ólöf eru þeir hlauparar í núverandi íslenska landsliðinu sem hafa hlaupið lengst.
Þorleifur Þorleifsson, Mari Jarsk og Þórdís Ólöf eru þeir hlauparar í núverandi íslenska landsliðinu sem hafa hlaupið lengst. Vísir/Samsett

Íslenska landsliðið í bakgarðshlaupum hefur verið valið fyrir HM sem fer fram í næsta mánuði. Íslandsmethafinn Þorleifur Þorleifsson er í liðinu og einnig er þar að finna hlaupadrottninguna Mari Järsk

Fimmtán hlauparar munu hlaupa fyrir Íslands hönd á HM landsliða sem hefst þann 17. október næstkomandi í 74 löndum. Íslneska landsliðið mun hlaupa sína bakgarðshringi í Elliðaárdalnum og verður sýnt beint frá keppninni hér á Vísi. 

Valið er í landsliðið út frá árangri bakgarðshlauparanna árin 2024 til 2026. Íslandsmethafinn Þorleifur Þorleifsson er þar fyrstur á blað á sínu Íslandsmeti, 62 hringum (415,4 km), sem hann setti einmitt í Elliðaárdalnum árið 2024.  

Hlaupadrottningin Mari Järsk, sem eignaðist sitt fyrsta barn í sumar, hefur einnig ákveðið að taka slaginn með landsliðinu. Mari tryggði sér sæti í keppninni með bakgarðshlaupi upp á 50 hringi en besti árangur hennar í bakgarðshlaupi eru 57 hringir. 

Önnur kunnugleg nöfn er að finna í landsliðshópi Íslands eins og Þórdísi Ólöfu Jónsdóttur sem vann bakgarðshlaupið í Öskjuhlíðinni í sumar. 

Landsliðshópur Íslands (Besti árangur) : 

  • Þorleifur Þorleifsson (62 hringir)
  • Mari Järsk (57 hringir)
  • Þórdís Ólöf Jónsdóttir (44 hringir)
  • Guðjón Sigurðsson (43 hringir) 
  • Guðmundur Lúther Hallgrímsson (43 hringir) 
  • Sylwester Kalucki (40 hringir) 
  • Gunnar Lárus Karlsson (39 hringir) 
  • Tómas Þór Jacobsen (38 hringir) 
  • Sölvi Snær Egilsson (35 hringir) 
  • Adam Komorowski (34 hringir) 
  • Friðrik Benediktsson (33 hringir) 
  • Þuríður Elín Þórarinsdóttir (33 hringir) 
  • Hekla Hannesdóttir (33 hringir) 
  • Oddur Máni Malmberg (31 hringur) 
  • Hildur Guðný Káradóttir (30 hringir) 

Ræst verður út í HM hlaupið á sama tíma í hverju landi fyrir sig og þó hver og einn hlaupari stefni að einhverju persónulegu markmiði er það samanlagður hringjafjöldi hvers lands fyrir sig sem gildir þegar að úrslitin ráðast.

Belgía er ríkjandi heimsmeistari í Bakgarðshlaupum en Ísland náði flottum árangri á síðasta HM árið 2024 og endaði í fjórtánda sæti af 63 þjóðum sem skráðar voru til leiks. 

Það var í þeirri keppni sem Þorleifur Þorleifsson setti ríkjandi Íslandsmet upp á 62 hringi.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×