Enski boltinn

Manchester City dæmt í 114 af 115 á­kæru­liðum

Sindri Sverrisson skrifar
Manchester City er í vanda
Manchester City er í vanda Vísir/Getty

Manchester City verður dæmt sekt í öllum nema einum af 115 ákæruliðum, fyrir brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Manchester City verður dæmt sekt í öllum nema einum af 115 ákæruliðum, fyrir brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvernig félaginu verður refsað en til greina koma sektir, stigafrádráttur eða jafnvel brottrekstur úr deildinni.

City hlaut ákærurnar fyrir brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar í febrúar árið 2023, eða fyrir þremur og hálfu ári. Óháð nefnd hefur nú komist að niðurstöðu, samkvæmt The Athletic, um að City-menn hafi gerst brotlegir í 114 tilvikum.

Liðirnir sem Manchester City er fundið sekt vegna:

• 54x Ekki veitt nákvæmar fjárhagsupplýsingar á tímabilunum 2009–10 til 2017–18.

• 14x Ekki veitt nákvæmar upplýsingar um greiðslur til leikmanna og knattspyrnustjóra frá 2009–10 til 2017–18.

• 5x Ekki farið að reglum UEFA, þar á meðal um fjárhagslega háttvísi (FFP), frá 2013–14 til 2017–18.

• 7x Brot á reglum ensku úrvalsdeildarinnar um hagnað og sjálfbærni (PSR reglur) frá 2015–16 til 2017–18.

• 35x Ekki sýnt samstarfsvilja við rannsóknir ensku úrvalsdeildarinnar frá desember 2018 til febrúar 2023.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×