Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Sindri Sverrisson skrifar 15. september 2026 15:02 Flosi Eiríksson segir viðtalið við Dagnýju áhugavert og skemmtilegt en telur skot hennar á Breiðablik ósanngjarnt. Samsett/Vísir Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, segir það ekki til marks um minni metnað í fótbolta kvenna hér á landi að liðið hafi neyðst til að skipta markverði inná sem útileikmanni í Evrópuleik í sumar. Um einstakt tilvik hafi verið að ræða.
Dagný Brynjarsdóttir lýsti áhyggjum af þróun mála hér á landi síðustu ár í íslenskum kvennafótbolta. Sagði hún Ísland vera að dragast aftur úr og sagði umgjörðina þurfa að vera betri hjá félögunum, þar á meðal þeim stærstu og bestu á landinu. „Það eru ýmsir litlir hlutir sem eru samt prinsipp. Til dæmis eru sum lið ekki með styrktarþjálfara. Æfingafatnaður leikmanna er ekki þveginn. Svo líka að liðin séu ekki með nógu stóran leikmannahóp eins og sást til dæmis hjá Breiðabliki [í Evrópukeppni]. Það er galið að eitt besta lið landsins sé að setja markmann inn á sem útispilara,“ sagði Dagný og nefndi fleira. Evrópuleikur Breiðabliks, sem Dagný minntist á, fór fram í Kasakstan í ágúst. Aðeins sextán leikmenn fóru út fyrir hönd Breiðabliks, í tvo Evrópuleiki, og í seinni leiknum kom svo upp sú staða að varamarkvörðurinn Taylor Kane varð að koma inná sem varamaður, í 3-2 sigri gegn Dinamo Minsk í framlengdum leik. Hópur Breiðabliks var hins vegar minni en ella vegna meiðsla og veikinda, að sögn Flosa, og atvikið alls ekki einkennandi fyrir stefnu félagsins. Hann fagnar viðtalinu við Dagnýju en vill ítreka það sem fram kom í viðtali við Ian Jeffs, þjálfara Breiðabliks, um að aðstæður hafi verið sérstaklega slæmar fyrir fyrrnefnda Evrópuleiki. „Það er alltaf gott að fá umræður og ábendingar um hvernig gera má betur í umgjörð og uppbyggingu kvennafótboltans á Íslandi og þar mun ekki standa á okkur, hvorki í orði eða á borði, en mig langar að koma á framfæri skýringum um þau dæmi sem Dagný nefnir,“ skrifar Flosi á Facebook-síðu sína. „Í mjög langri, erfiðri og dýrri ferð til Kasakstan urðum við fyrir meiðslum og veikindum rétt fyrir brottför – auk þess sem nokkrir leikmenn glímdu við veikindi í ferðinni sjálfri, fyrir utan aðstæður sem voru afar krefjandi. Við þær aðstæður var gripið til þess ráðs að varamarkmaður spilaði 10 mínútur í lok leiks. Ekki draumastaða en eðlilegt neyðarúrræði. Að leggja þetta einstaka tilvik þannig upp að það sýni að við í Breiðabliki höfum ekki metnað fyrir kvennaboltanum er pínu ósanngjarnt og tekur ekkert tillit til aðstæðna á tímabilinu í heild sinni eða í þessari Evrópuferð. Önnur atriði sem hún nefnir eiga ekki við um Breiðablik,“ skrifar Flosi. Hann tjáði sig svo frekar um málið í viðtali við Valtý Björn Valtýsson í Minni skoðun á X977. Viðtalið má heyra eftir 37:30 mínútur af þættinum hér að neðan. „Þetta segir ekkert um að við viljum ekki vera með nógu stóran hóp,“ sagði Flosi í þættinum um stöðuna sem myndaðist í Kasakstan. „Ekkert um framlag Breiðabliks eða hvernig við viljum standa að þessu,“ sagði Flosi og bætti við að til viðbótar við meiðsli leikmanna hefðu þrjár verið orðnar óléttar á þessum tímapunkti. „Mér fannst þetta dæmi því óheppilegt,“ sagði Flosi og ítrekaði að önnur dæmi sem Dagný nefndi um skort á umgjörð ættu ekki við Breiðablik: „Þetta á ekki við okkar félag. Við erum að reyna að leggja okkur fram um að hafa umbúnað og aðstöðu eins góða og við getum. Við reynum að bæta hana á hverju ári. Það er örugglega eitthvað sem við getum gert betur, ýmislegt sem við ætlum að gera betur, og það er hjá báðum kynjum. Auðvitað er alveg rétt hjá Dagnýju að það eru slagsmál alla daga vikunnar við að halda uppi standard og umgjörð í kvennaboltanum, og raunar báðu megin. Það er ekkert brjálæðislega auðvelt að reka íslensk knattspyrnufélög,“ sagði Flosi.
Besta deild kvenna Breiðablik Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fótbolti Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti Milner aftur til Liverpool Enski boltinn „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Enski boltinn Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti Raheem Sterling játar sök Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Sjáðu sturlað mark Tómasar, rassamark Vals og tvennur Galdurs og Benedikts Slagsmál á æfingu trufluðu ekki: „Litlar stimpingar með stórum afleiðingum“ Fámáll um orðrómana „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ „Allir orðnir vinir í skóginum“ „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Þróttur tryggði sig í úrslitaleikinn „Mótið í rauninni búið“ „Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálfleikinn“ „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ „Fannst dómarinn missa svolítið tökin á leiknum” Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-0 | Warén jók á áhyggjur Eyjamanna Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Markaskorari Vals óviss um framtíð sína Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 4-1 | Valsmenn ekki í vandræðum með Þórsara Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Þróttarar brutu bikarinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina Sjá meira