Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum Iðan fræðslusetur 16. september 2026 10:22 Kristjana Guðbrandsdóttir leiðtogi prent- og miðlunargreina og Steinn Óskar Sigurðsson, leiðtogi matvæla- og veitingagreina hjá Iðunni fræðslusetri segja námskeiðsframboð haustsins endurspegla þá öru þróun sem eigi sér stað í iðngreinum. Símenntun fagfólks sé mikilvæg. Spennandi haustdagskrá er fram undan hjá Iðunni fræðslusetri sem fagnar 20 ára afmæli á árinu. Innan Iðunnar eru matvæla- og veitingagreinar, prent- og miðlunargreinar, bygginga- og mannvirkjagreinar, bílgreinar og málm- og véltæknigreinar en Iðan telur um 15.500 félagsmenn um allt land. Námskeiðsflóran spannar allt frá hefðbundnu handverki og sérhæfðri fagþekkingu til gervigreindar.
Megináhersla Iðunnar er á símenntun fagfólks en starfsemin er þó mun fjölbreyttari. Steinn Óskar Sigurðsson, leiðtogi matvæla- og veitingagreina hjá Iðunni, segir símenntun sífellt mikilvægari enda þróist iðngreinar hratt. Alltaf eitthvað nýtt að læra „Fókusinn hjá mér er á kokka, þjóna, bakara, desertkokka og kjötiðnaðarmenn, auk þess sem barþjónar hafa komið sterkir inn í fræðsluna. Það eru afar hraðar breytingar í öllum þessum greinum og framboð námskeiða hjá okkur endurspeglar það,“ segir Steinn. Steinn Óskar Sigurðsson, leiðtogi matvæla- og veitingagreina hjá Iðunni segir símenntun afar mikilvæga í örri tækniþróun iðngreina.Hulda Margrét „Við fáum óskir um ákveðin námskeið og förum í heimsóknir, bæði til að kynna okkur þarfirnar og leita hugmynda. Oft fáum við ábendingar frá fagmönnum hér heima um erlenda sérfræðinga. Félagsmenn Iðunnar eru dreifðir um allt land og í haust leggjum við áherslu á að fara með námskeiðin á Norðurland og Austurland og leita jafnframt hugmynda þar.“ Dæmi um fagnámskeið á haustdagskrá Iðunnar eru HACCP-námskeið í hreinlæti og öryggi ásamt ofnæmis- og óþolsnámskeiðum. Þá má nefna „Molecular Kitchen Cooking“, eða tilraunaeldhús nútímamatargerðarlistar, þar sem kennd verður meðferð náttúrulegra hjálparefna, til dæmis efna sem geta bundið saman olíu og vökva, búið til froður og hlaup og skapað sérstaka áferð. Gervigreind hefur einnig skapað nýja möguleika og hagræðingu í veitinga- og matvælaiðnaðinum, líkt og á öðrum sviðum. Gervigreind og þrívíddarprentun í eldhúsinu „Á námskeiðinu Ofurkraftar í starfi er yfir hvaða gervigreind hentar hverri starfsemi og unnið með raunveruleg verkefni, svo sem innkaup, rýrnun, starfsmannamál, vaktaplön og tölvupósta. Þér er kennt að búa til aukastarfsmann sem sér um þessi daglegu og oft tímafreku verkefni svo þú getir nýtt tímann í það sem þú ert best eða bestur í,“ útskýrir Steinn. „Þá bjóðum við einnig upp á þrívíddarprentunarnámskeið sem kokkar, desertkokkar og bakarar hafa nýtt sér meðal annars til að prenta sílikonform fyrir bakstur og eftirréttagerð. Þjónar geta líka nýtt þessa tækni til að prenta hillur og bakka. Möguleikarnir eru endalausir. Við fáum til okkar erlenda sérfræðinga, meðal annars tvo breska kjötiðnaðarmenn sem verða með tveggja daga námskeið í „Modern Butcher Counter“. Þeir fara yfir allt frá grunnundirbúningi hráefnis og uppsetningu kjötborðs til marineringa og meðlætis. Við fáum einnig varaforseta IBA, alþjóðlegra barþjónasamtaka, sem verður með réttindanámskeið í dómgæslu fyrir barþjóna. Þar verður farið yfir tæknina frá A til Ö. Í haust má læra að galdra fram gott Ramen í Iðunni fræðslusetriKristinn Magnússon Þá ætlum við að setja á dagskrá námskeið fyrir fagfólk í matvælagreinum þar sem kennd verður upptaka myndefnis fyrir samfélagsmiðla. Slíkt efni er mikilvægt markaðstæki, til dæmis fyrir veitingastaði og bakarí.“ Ostar, viskí og hinn fullkomni G&T Fjölbreytni námskeiðanna nær yfir enn víðara svið því Iðan býður einnig upp á það sem Steinn kallar hobbýnámskeið og njóta þau mikilla vinsælda. „Þar má nefna námskeið í úrbeiningu, hnífabrýnslu og viskísmökkun þar sem farið er yfir muninn á skosku, japönsku og taívönsku viskíi. Einnig verður boðið upp á ostanámskeið þar sem smakkaðir verða mismunandi ostar og farið yfir hvað passar með þeim. Þá má nefna námskeið í flökun og nýtingu á fiski, vínnámskeið og námskeið í að blanda hinn fullkomna G&T. Hobbýnámskeiðin eru alltaf vel sótt, sérstaklega af félagsmönnum úr öðrum iðngreinum.“ Prentheimurinn fer stækkandi og kallar á nýja þekkingu Kristjana Guðbrandsdóttir, vefstjóri og leiðtogi prent- og miðlunargreina hjá Iðunni, tekur undir með Steini að hröð tækniþróun kalli á stöðuga endurmenntun. Það eigi ekki síst við í prent- og miðlunargreinum. Kristjana Guðbrandsdóttir leiðtogi prent- og miðlunargreina hjá Iðunni segir prentið lifa góðu lífi. Það sýni sig meðal annars í vexti prentaðra umbúða og því hvernig prentaðar bækur halda velli.Hulda Margrét „Fólk þarf stöðugt að vera á tánum að ná sér í nýja þekkingu og haustið verður því eins og alltaf mjög líflegt í prent- og miðlunargreinum. Við bjóðum upp á ítarleg námskeið í InDesign, Photoshop og öðrum verkfærum sem fólk í greinunum vinnur með og styttri hnitmiðaða fræðslu sem gefur fólki sterkan innblástur til verka. Í vetur bjóðum við fólki á fyrirlestraröð sem við köllum Hádegiskveikjuna. Þessir fyrirlestrar auðvelda fólki að bæta við sig þekkingu án þess að taka frá heilan dag. Hádegiskveikjan er fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði og í ár beinum við sjónum okkar að stafrænni þróun. Fyrirlestrarnir henta vel fólki í miðlunargreinum en líka stjórnendum sem þurfa að vanda skrefin í rekstri. Hún segir þá sem halda því fram að heimur prentsins fari minnkandi hafi rangt fyrir sér. Prentið lifi og undanfarin ár hafi fólk áttað sig á kostum prentsins. Það sýni sig í vexti prentaðra umbúða og því hvernig prentaðar bækur halda velli. Prentað efni sé að auki sjálfbært og gríðarlega öflugt markaðstæki. Frá stafrænu prentsmiðjunni Pixel. Prentsmiðir eru sérfræðingar í framsetningu vandaðs efnis.Kristinn Magnússon „Ef ég væri að velja mér fag í dag þá myndi ég hiklaust velja mér prentsmíði sem að í dag er sameinað fag prents, bókbands og grafískrar miðlunar. Það er vegna þess að það er nánast orðin grunnkrafa á vinnumarkaði að kunna handtökin í mynd- og ritvinnslu. Margir hafa runnið á hálu svelli með því að treysta um of á gervigreindina. Það getur reynst dýrt að renna á svellinu og ef þú hefur ekki þekkinguna að baki þá sérðu ekki nógu vel hvað er vandað og hvað er óvandað. Prentsmiðir búa að meiru en þessari grunnþekkingu og eru sérfræðingar í framsetningu vandaðs efnis og vinna bæði með stafrænt efni á vef og prentað efni. Þeir þekkja letur, vandað myndmál og gæði mynda. Þetta er orðið stærra svið, miklu meira spennandi og gríðarleg þörf er á sérhæfingu og sérþekkingu,“ segir Kristjana. Náin samvinna við fagsamfélagið Líkt og Steinn vinnur Kristjana náið með fyrirtækjum og þróar fræðsluna í takt við þarfir þeirra. „Ég fer í heimsóknir í fyrirtæki þar sem félagsfólk okkar er að finna og kanna þarfirnar; hvaða þekkingu vantar til að fyrirtækinu og fagfólki gangi betur að vinna sín störf og öðlast samkeppnisforskot. Kristjana segir samstarf Iðunnar við atvinnulífið mikilvægt. Hér er hún í heimsókn í prentsmiðjunni Héraðsprenti á Egilsstöðum. Frá vinstri: Karl Emil, Rósmundur, Kristjana, Þráinn, Gunnhildur og Ingunn.Iðan/SKP Við sækjum okkur sjálf þekkingu og erum einnig í samstarfi á alþjóðavettvangi því við erum auðvitað mjög einangruð hér á Íslandi. Okkar fyrsta skylda er að skilja þróunina í greinunum, horfa fram á veginn, sækja þekkinguna og miðla henni. Þetta er kjarninn í starfinu okkar.“ Mikilvægt að efla innlenda prentvinnslu „Prentsmiðir starfa miklu víðar en í prentsmiðjum hér á Íslandi. Þeir starfa í markaðsdeildum fyrirtækja, auglýsingastofum og stórum framleiðslufyrirtækjum. Prentsmiðjum hefur fækkað og eiga í vök að verjast sem er miður. Það skiptir okkur ofboðslega miklu máli að styðja vel við prentfyrirtækin og fagfólkið sem þar starfar og þá skiptir engu máli hvort prentsmiðjurnar eru stórar eða litlar. Héraðsprent á Egilsstöðum er til dæmis ein flottasta prentsmiðja landsins þótt hún sé lítil og á Akureyri og Selfossi eru góð útibú Prentmet Odda þar sem starfar harðduglegt fólk. Öll þessi fyrirtæki skila miklu til samfélagsins og gefa einnig út fréttamiðla sem stuðla að góðu lífi á landsbyggðinni. Það er mikilvægt að við landsmenn skiljum þetta betur. Við prentum of mikið utan landsteinana til að spara og hagræða. Sparnaðurinn er hins vegar lítill miðað við þau skaðlegu áhrif sem íslenskar prentsmiðjur verða fyrir og við öll á endanum ef þeim fækkar enn frekar.“ Metnaður einkennir dagskrá allra iðngreina Kristjana segir leiðtoga Iðunnar vinna saman sem eina heild og mikinn metnað einkenna námskeiðsframboð allra greina. Bygginga- og mannvirkjagreinar eru langstærsta sviðið innan Iðunnar og þar sækja langflestir námskeið. Viðfangsefnin spanna allt frá handverki og grjóthleðslu til gervigreindar og þess hvernig nýta má hana til að horfa skarpar á hlutina. Námskeiðsflóran sé því afar litrík. Bygginga- og mannvirkjagreinar eru langstærsta sviðið innan IðunnarIðan/SKP „Við erum með námskeið fyrir fagfólk sem kemur að uppbyggingu og framkvæmd mannvirkja, hönnun og mótun. Ég nefni sérstaklega námskeið um blágrænar ofanvatnslausnir sem er afar spennandi viðfangsefni í íslenskri mannvirkjagerð. Einnig má nefna séríslensk námskeið um gluggaísetningar og vandað verklag. Fagmennskan hér á landi er mikil og þarf að vera það. Við erum lítil þjóð og þurfum þess vegna að vinna enn markvissar að því að standa okkur vel og vera samkeppnishæf, fagfólk í mannvirkjagreinum getur treyst á Iðuna.“ Fjölbreyttar leiðir til að efla færnina Auk námskeiða býður Iðan upp á raunfærnimat í iðngreinum og heldur utan um sveinspróf. Iðan hefur jafnframt umsjón með Erasmus+ styrkjum sem veita iðnnemum, nýsveinum, leiðbeinendum og nefndarfólki tækifæri til námsdvalar í Evrópu. Þar gefst þátttakendum kostur á að kynnast faginu í alþjóðlegu samhengi, læra ný vinnubrögð og mynda tengsl við fagfólk í öðrum löndum. Iðan býður upp á fjölbreytt námskeið í málm- og véltæknigreinumIðan/SKP Iðan styður einnig þátttöku ungs fagfólks í keppnum á borð við EuroSkills og Norðurlandakeppnir. Keppnirnar veita þátttakendum dýrmæta reynslu, vekja athygli á iðngreinum og sýna þann mikla metnað og þá fagmennsku sem býr í íslensku handverks- og iðnaðarfólki. Upplýsingar um fræðsluframboð, dagsetningar og verð eru aðgengilegar hér. Félagsmenn fá námskeiðin niðurgreidd um 80 prósent en þau eru einnig opin öðrum gegn fullu gjaldi. Þau sem ekki eru félagar í Iðunni getur sótt um styrki í sitt stéttarfélag.
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Atvinnulíf Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Viðskipti innlent Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira