Sport

Fékk heila­hristing í fyrsta leik

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kyler Murray rennir sér hér með boltann. Sekúndu síðar fékk hann þungt höfuðhögg sem leiddi til heilahristings.
Kyler Murray rennir sér hér með boltann. Sekúndu síðar fékk hann þungt höfuðhögg sem leiddi til heilahristings. vísir/getty

Það var mikil spenna fyrir frumraun leikstjórnandans Kyler Murray með Minnesota Vikings í gær.

Murray er afar frambærilegur leikstjórnandi en hefur spilað með slöku liði Arizona Cardinals síðustu ár. Menn biðu spenntir að sjá hvað Murray myndi gera með frábærum sóknarmönnum Vikings sem eru á allt öðru getustigi en hann átti að venjast hjá Cardinals.

Frumraunin gegn Green Bay Packers varð því miður fyrir Murray frekar endasleppt. Hann byrjaði leikinn á að kasta boltanum frá sér og fékk skömmu síðar heilahristing. Þar af leiðandi mun hann væntanlega ekki spila um næstu helgi.

Murray er sagður hafa verið fljótur að jafna sig og var léttur í lund með félögum sínum inn í klefa eftir leik.

Varamaður hans, reynsluboltinn Carson Wentz, kom sterkur inn af bekknum og leiddi magnaði endurkomu Vikings í leiknum.

Ef allt er eðlilegt ætti Murray að snúa til baka eftir tvær vikur.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×