Sport

Besta frjálsíþróttafólk heims mætast í nýju móti

Andri Broddason skrifar
Armand Duplantis verður sérstök stjarna mótsins og Noah Lyles verður kynnir vegna meiðsla.
Armand Duplantis verður sérstök stjarna mótsins og Noah Lyles verður kynnir vegna meiðsla. Samsett/Getty

Nýtt frjálsíþróttamót hefur göngu sína um helgina þar sem tíu milljónir dollara verða í verðlaunafé. Mótið er aðeins fyrir allra bestu íþróttamennina í hverri grein og má búast við gríðarlegu sjónarspili.

The World Athletics Ultimate Championship verður haldið um helgina í fyrsta skipti þar sem aðeins ríkjandi Ólympíumeistarar, heimsmeistarar og meistarar demantamótaraðarinnar fá að keppa í sínum greinum. Til að fylla í greinarnar fá svo þeir íþróttamenn sem eru hæstir á stigalista fyrir hverja grein keppnisrétt þangað til fullt verður í mótið.

Einhverjar stjórstjörnur fá þó undantekningu á þessari reglu eins og Norðmaðurinn Jakob Ingebrigtsen sem mun keppa í 1500 metra hlaupi karla þrátt fyrir að standast ekki strangar kröfur. Ekki verður þó keppt í öllum greinum þar sem nokkrar greinar þóttu ekki nógu vinsælar og verður þeim sleppt. Þar á meðal eru kringlukast, kúluvarp og 10 þúsund metra hlaup.

Frjálsíþróttastjörnur syngja og kynna á rauðum dregli

Mikið verðlaunafé verður í boði og er planið að gera mikið sjónarspil úr mótinu. Daginn áður en keppnin hefst verður rauður dregill fyrir keppendur þar sem þeir mæta í sínu fínasta pússi og haldnir verða blaðamannafundir og myndatökur.

Sænska stangastökksstjarnan Armand Duplantis er ein af helstu stjörnum mótsins og samdi sérstakt lag tileinkað mótinu. Hann mun syngja lagið á leikunum og segist hann vera spenntur fyrir nýju móti í frjálsum íþróttum.

Bandaríski spretthlauparinn Noah Lyles getur ekki verið með á mótinu vegna meiðsla en hann ætlar ekki að láta sig vanta. Hann mun verða eins konar þáttastjórnandi í sjónvarpinu og mun sjá um að skemmta áhorfendum.

Fjölga stórmótum til að halda áhorfendum

Þegar Ólympíuleikar eða heimsmeistaramót eru ekki í gangi hafa frjálsar íþróttir ekki fengið mikla athygli. Markmið mótsins er að reyna að bæta það og halda mótið á árum þar sem ekki eru heimsmeistaramót né Ólympíuleikar. Þannig eru fleiri mót sem geta haldið athygli áhorfandans.

Ekki eru þó allir sáttir með mótið og hefur grindahlauparinn Karsten Warholm talað um að dagskráin í lok tímabils sé algjör ringulreið. Í viðtali við norska miðilinn VG segir hann að það verði erfitt fyrir frjálsíþróttaheiminn að halda í við þessi nýju verðlaun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×