Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. september 2026 07:43 Nokkrir ráðherrar í ríkisstjórn Danmerkur, Ida Auken heilbrigðisráðherra til vinstri og Mette Frederiksen forsætisráðherra hægra megin. EPA/MADS CLAUS RASMUSSEN Heilbrigðisráðherrar Danmerkur og Grænlands hafa komist að samkomulagi um að Grænlendingar geti nálgast fría læknisþjónustu í Danmörku. Hingað til hafa Grænlendingar þurft að sækja um sérstök leyfi til að nálgast læknisþjónustu í Danmörku en Grænlendingar hafa stýrt eigin heilbrigðismálum síðan árið 1992.
Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins kemur fram að um 1300 Grænlendingar sæki læknisþjónustu til Danmerkur á ári hverju. Haft er eftir heilbrigðisráðherra Danmerkur Ida Auken að Danir muni kosta til 180 milljónum danskra króna til þessa á ári hverju eða 3,4 milljörðum íslenskra króna. „Danmörk er hluti af ríkjasambandinu ásamt Grænlandi. Mér finnst það alveg rétt, nú þegar við höfum sérhæfða hæfni í Danmörku, að við tryggjum þá algerlega jafna meðferð og tryggjum að Danmörk greiði sinn hluta af því,“ segir Auken. Anne Wangenheim heilbrigðisráðherra Grænlands segir að um sögulegan samning sé að ræða. Grænlendingar reka 74 heilsugæslur og spítala í Nuuk. Sérstakt heilbrigðisráð verði stofnað til þess að tryggja að Grænlendingar hljóti sama rétt til þjónustu í Danmörku og Danir. Wangenheim segir að nýi samningurinn nái til ýmissar þjónustu. „Þetta á meðal annars við um snemmgreiningu krabbameins, sem er ábótavant á Grænlandi. Það þýðir að dánartíðnin er mun hærri. Þetta samkomulag er einmitt til að tryggja að við innleiðum kerfi sem gefa okkur sömu tækifæri til sérhæfðra meðferða,“ segir hún. Grænlendingar hafi hingað til eytt 1,8 milljarði danskra króna í heilbrigðisþjónustu. Nýr samningur geti orðið til þess að peningum verði betur varið í þjónustuna á Grænlandi. Mikill styr hefur staðið um stöðu Grænlands, þá sérstaklega í upphafi ársins þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því ítrekað yfir að hann vildi að Grænland yrði hluti af Bandaríkjunum. Danir hafa allir götur síðan þvertekið fyrir það að láta þá drauma rætast og hafa meðal annars fjölgað í herliði sínu á Grænlandi.
Danmörk Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Sjá meira