Sport

„Hvers konar spurning er þetta?“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sabalenka var ekkert sérlega skemmt á blaðamannafundi eftir sigurinn í nótt.
Sabalenka var ekkert sérlega skemmt á blaðamannafundi eftir sigurinn í nótt. Robert Prange/Getty Images

Aryna Sabalenka vann snöggan og öruggan sigur á Polin Iatcenko á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis í nótt. Hún var ósátt við blaðamann eftir sigurinn.

Það tók Sabalenku aðeins 53 mínútur að rúlla Iatcenko upp 6-1 6-1 í leik næturinnar. Hún stefnir á að verja titilinn á Opna bandaríska annað árið í röð og komast aftur á gott skrið eftir slakt gengi að undanförnu.

Sabalenka hóf tímabilið frábærlega með sigri á Opna ástralska og sigrum í Indian Wells og Miami í kjölfarið. Eftir góða byrjun hallaði aðeins undan fæti og Elena Rybakina hótar því að taka efsta sæti heimslistans af Sabalenku.

Til að koma í veg fyrir það þarf Sabalenka helst að vinna Opna bandaríska og vonast til að Rybakina komist ekki í undanúrslit.

Og eftir að hafa sigrað Iatcenko varð Sabalenka reið yfir því sem hún taldi blaðamann benda til þess að hún hefði sótt „mörg partý“ í aðdraganda US Open.

„Þið eruð brandari,“ sagði Sabalenka sem var bersýnilega pirruð á spurningunni.

„Hvers konar spurning er þetta? Bara vegna þess að ég birti nokkrar færslur um vinnu mína með vörumerkjum, heldurðu að ég hafi verið að skemmta mér [en] ekki æfa?“ svaraði Sabalenka.

Aðspurð hvort hún væri að „taka tennisinn alvarlega“ núna þegar mótið væri hafið, sagði hún: „Ó já, vegna þess að ég tók þetta ekki alvarlega fyrir mótið. Næsta spurning.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×