Sport

Ver um­deilda vegg­mynd sína af Ronnie O'Sullivan

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
HQz1UVUWIAAsPb6

Götulistamaðurinn Chris Ashmore hefur varið umdeilda veggmynd sína af snókerkappanum Ronnie O'Sullivan. Myndin hefur fallið misjafnlega í kramið hjá fólki.

Ashmore var fenginn til að gera veggmynd af O'Sullivan fyrir aftan snókerstaðinn Spot On í Sheffield.

Skiptar skoðanir eru á veggmyndinni af O'Sullivan. Á meðan sumum finnst hún vel heppnuð segja aðrir að heimsmeistarinn sjöfaldi líti út eins og uppvakningur á veggmyndinni, að hann sé undir áhrifum lyfja eða minni á apa.

Ashmore segir að það hafi komið sér á óvart hversu mikil viðbrögð hann fékk við veggmyndinni hjá netverjum. Hann sagði jafnframt að veggmyndin væri alls ekki tilbúin. Aðeins tveimur vikum af fimm, sem voru áætlaðar til að klára verkið, væri lokið.

Ennfremur sagði Ashmore hann hefði skort heildarsýn yfir verkið þar sem hann hafi unnið á vinnupalli sem byrgði honum sýn.

„Ég nota yfirleitt skæralyftu þar sem maður getur stigið aftur og séð hlutina í heild sinni en ég gat ekki notað hana þar sem landið er of ójafnt,“ sagði Ashmore.

„Þegar vinnupallurinn var tekinn niður fór ég og búmm! Þetta fór á flug. Ég sá fólk segja að þetta liti út eins og Michael Jackson eða uppvakningur. Ég er með þykkan skráp og það verður allt í lagi með mig en mér fannst þetta ekki sanngjarnt.“

Ashmore lætur gagnrýnina ekki á sig fá og ætlar ekki að flýta sér um of að klára myndina af O'Sullivan bara af því að fólk hefur gagnrýnt hana á samfélagsmiðlum. Hann vill vanda sig og skila af sér góðu verki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×