Erlent

„Slátrarinn í Bosníu“ Slatko Mladic látinn

Kjartan Kjartansson skrifar
Ratko Mladic árið 1993.
Ratko Mladic árið 1993. Vísir/EPA

Ratko Mladic, alræmdur fyrrverandi hershöfðingi Bosníuserba, er látinn. Hann hlaut lífstíðardóm fyrir þjóðarmorð og stríðsglæpi sem hann framdi í Bosníustríðinu á tíunda áratug síðustu aldar.

Serbnesk ríkissjónvarpsstöð greindi frá andláti Mladic í dag. Hann fékk heilablóðfall í apríl, að sögn norska dagblaðsins VG. Honum var hafnað um lausn úr fangelsi af heilsufarsástæðum í júlí í fyrra.

Mladic gekk undir viðurnefninu „bosníski slátrarinn“ vegna framgöngu hans í Bosníustríðinu sem geisaði frá 1992 til 1995. Alþjóðlegur dómstóll sakfelldi Mladic fyrir þjóðarmorð og stríðsglæpi árið 2017.

Hans er sérstaklega minnst vegna fjöldamorðanna í Srebrenica árið 1995 þar sem um átta þúsund bosnískir múslimar, karlmenn og drengir, voru teknir af lífi. Einnig vegna umsátursins um Sarajevó sem kostaði um tíu þúsund manns lífið.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×