Golf

McIlroy á­hyggju­fullur eftir erfiða reynslu

Aron Guðmundsson skrifar
Rory McIlroy hefur ekki fundið taktinn úti á golfvelli upp á síðkastið.
Rory McIlroy hefur ekki fundið taktinn úti á golfvelli upp á síðkastið. Vísir/Getty

Norður-Írski atvinnukylfingurinn Rory McIlroy er áhyggjufullur eftir að hafa endað í 66.sæti á móti á PGA-mótaröðinni þar sem að honum tókst ekki að skila hring á undir pari vallarins. Lítið hefur gengið hjá McIlroy upp á síðkastið. 

Bandaríkjamaðurinn Scottie Scheffler vann kærkominn sigur á mótinu og endaði á sautján höggum undir pari, hans fyrsti sigur á móti síðan í janúar. 

McIlroy lauk hins vegar keppni á átta höggum yfir pari og varð 66.sæti niðurstaðan. McIlroy tryggði sér alslemmuna á risamótum í golfi með sigri á Masters mótinu fyrr á árinu en hann hafði ekki tekið þátt á móti frá því á Opna breska meistaramótinu í júlí. 

Þessi magnaði kylfingur fann aldrei taktinn á mótinu á St Jude meistaramótinu og á langt í land ætli hann sér að landa FedEx bikarnum seinna í mánuðinum sem yrði þá í fjórða skipti á hans ferli.

„Ég er svo langt frá þeim stað sem ég þarf að vera á til þess að einu sinni hafa trú á því að eiga möguleika á því móti,“ sagði McIlroy í viðtali eftir mót helgarinnar. „Ég er ekki búinn að vera keppa mikið í aðdraganda þessa móts en eftir því sem leið á mótið virtist sveiflan mín bara verða verri og verri.

Það var gott að dusta rykið af þessu en ég mun þurfa að leggja mjög hart að mér fram að næsta móti til þess að búa yfir leik sem gerir mig samkeppnishæfan að einhverju leiti.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×