Sport

Setti tvö heims­met á sama deginum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kate Douglass endurheimti heimsmetið í 50 metra skriðsundi um helgina með því að slá það tvisvar sinnum með nokkurra klukkutíma millibili.
Kate Douglass endurheimti heimsmetið í 50 metra skriðsundi um helgina með því að slá það tvisvar sinnum með nokkurra klukkutíma millibili. AP/Gregory Bull

Bandaríska sundkonan Kate Douglass sýndi styrk sinn í sundlauginni um helgina þegar hún sló heimsmetið í 50 metra skriðsundi tvisvar sinnum.

Hin 24 ára gamla Douglass var í miklu stuði á Pan Pacific-meistaramótinu í Irvine.

Hún tryggði sér gullið í úrslitum á Pan Pacific-meistaramótinu með því að synda 50 metra skriðsund á 23,19 sekúndum.

Nokkrum klukkustundum áður hafði Douglass tekið metið af landa sínum, Gretchen Walsh.

Það gerðist í einum af undanrásunum þar sem Douglass sló hendinni í bakkann eftir 23,49 sekúndur.

Heimsmetið hefur síðustu tvo mánuði gengið á víxl milli Douglass og Walsh, eftir að sænska sundkonan Sarah Sjöström hafði átt það í mörg ár.

Í júní sló Douglass met hinnar sænsku sundkonu frá 2023, sem var 23,61 sekúndur, með tímanum 23,59 sekúndur á móti í Indianapolis.

Nokkrum dögum síðar tók Walsh metið með tímanum 23,55 sekúndur.

Douglass er fimmfaldur Ólympíuverðlaunahafi, þar af vann hún tvenn gull á síðustu leikum í París. Hún hefur líka unnið 34 verðlaun, þar af 16 gull, á heimsmeistaramótum (samanlagt í 25 og 50 metra laug).

Douglass er nú heimsmethafi í 100 m skriðsundi, 200 m bringusundi og 200 m fjórsundi í 25 metra laug og í 50 m skriðsundi í 50 metra laug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×