„Held að þetta hafi verið góð auglýsing fyrir Bestu deild kvenna“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. ágúst 2026 19:58 Stelpurnar hans Ians Jeffs eru núna með þriggja stiga forskot á toppi Bestu deildar kvenna. vísir/diego Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, hrósaði sínu liði, og þá sérstaklega varnarleik þess, eftir sigurinn á FH, 0-3, í toppslag í Bestu deild kvenna í dag.
FH hafði skorað í öllum fjórtán deildarleikjum sínum á tímabilinu en Breiðablik varð í dag fyrsta liðið í sumar til að halda hreinu gegn FH-ingum. „Eins og ég var að nefna fyrir leikinn, þegar við vorum að spjalla saman, var þetta varnarleikurinn. Við þurftum að sinna honum gríðarlega vel í dag. Ég veit alveg að við munum alltaf skapa færi og skora mörk. Það eru það mikil gæði í okkar sóknarmönnum að við munum alltaf gera það. Við lögðum upp með að vera traustar varnarlega í dag. Það eru ekki mörg lið sem eru að halda hreinu á móti FH og það er bara hrós á mitt lið,“ sagði Jeffs í samtali við Vísi eftir leikinn í Kaplakrika. „Varnarleikur liðsins var bara frábær hérna, há pressa, lágblokk og miðjublokk; allt sem við gerðum var alveg upp á tíu.“ Áttum fyrri hálfleikinn Blikar byrjuðu leikinn af krafti og náðu forystunni strax á 9. mínútu. „Við byrjuðum leikinn bara mjög vel og við áttum bara fyrri hálfleikinn. Við áttum fullt af færum og skoruðum tvö mörk og mér fannst við vera töluvert sterkara lið í fyrri hálfleik. FH kom sterkt út í seinni hálfleik og setti svolitla pressu á okkur eins og við vissum að þær myndu gera,“ sagði Jeffs. „Mér finnst bara við við komast í gegnum þann kafla, sem ég vissi alveg að myndi verða pínu erfiður, og komum mjög sterkar inn í seinni hlutann af seinni hálfleik. Hrós á stelpurnar í dag; bara alla þessa leiki sem þær eru búnar að spila, ferðalögin og allur pakkinn. Þetta var alvöru liðsheild og barátta, hugarfar og vinnusemi. Þetta var bara geggjað og þetta eru frábærar stelpur. Þetta er frábær liðssigur í dag.“ Get ekki beðið um neitt meira FH vann sig betur inn í leikinn í seinni hálfleik en þriðja mark Breiðabliks á 72. mínútu kláraði dæmið fyrir Íslandsmeistarana. Jeffs segir að það hafi verið gott að fá mark á þessum tíma. „Jú, þetta var alveg þannig. Ég viðurkenni það. Út af því að FH var svolítið að setja pressu á okkur og næsta mark leiksins var alltaf að fara að hafa áhrif. Ef þær næðu marki er 2-1 og hugsanlega komin smá pressa á okkur og við föllum niður og þá hefðu síðustu tuttugu mínúturnar kannski verið miklu erfiðari þær voru. En við náðum að skora þriðja markið og sigla þessu heim,“ sagði Jeffs sem var svo sannarlega ánægður með daginn. „Þetta eru bara tvö frábær lið sem voru að spila í dag, geggjuð umgjörð og FH búið að gera þetta virkilega vel. Frábær völlur, bara góð mæting og ég get ekki beðið um neitt meira. Ég held að þetta hafi verið góð auglýsing fyrir Bestu deild kvenna í dag.“
Besta deild kvenna Breiðablik FH Mest lesið Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Strákarnir sitja fastir Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Sport Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Modric skammast sín Fótbolti Fleiri fréttir Breiðablik - Þróttur | Geta sett aðra höndina á titilinn FH - ÍBV | Hafnfirðingar þurfa sigur Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Sjá meira