Sport

Tveir Ís­lendingar bættu sinn besta tíma í morgun

Andri Broddason skrifar
Einar Margeir Ágústsson og Jóhanna Elín Guðmundsdóttir bættu persónuleg met á EM í sundi í morgun.
Einar Margeir Ágústsson og Jóhanna Elín Guðmundsdóttir bættu persónuleg met á EM í sundi í morgun. Samsett/Vísir

Íslensku sundkapparnir héldu áfram á EM í sundi. Einar Margeir Ágústsson náði að bæta sitt persónulega met í 50 metra bringusundi og Jóhanna Elín Guðmundsdóttir bætti persónulegt met í 50 metra skriðsundi.

Fimm Íslendingar syntu í undankeppnum á Evrópumótinu í sundi í morgun. Þrír Íslendingar syntu í 50 metra bringusundi en það voru þeir Einar Margeir Ágústsson og Snorri Dagur Einarsson.

Einar Margeir náði að bæta sitt persónulega met í sundinu en hann fór 50 metrana á 27,77 sekúndum og endaði í 30. sæti. Þetta var þriðja persónulega metið sem Einar Margeir nær að bæta en hann er einnig búinn að bæta það í 100 metra bringusundi og 200 metra bringusundi. Snorri Dagur synti í morgun á 27,97 sekúndum og endaði í 42. sæti.

Hólmar Grétarsson synti í 200 metra flugsundi í morgun og endaði sundið á 2:04,68. Sá tími skilaði honum í 35. sæti en það var ekki nóg til þess að komast áfram.

Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Vala Dís Cicero syntu báðar í 50 metra skriðsundi í morgun. Þar náði Jóhanna Elín að bæta sinn besta persónulega tíma en hún synti á 25,66 sekúndum sem skilaði henni í 32. sæti. Vala Dís Cicero var aðeins á eftir Jóhönnu Elínu og synti á 26,82 sekúndum sem skilaði henni í 47. sæti af þeim 51 sem tóku þátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×