Sár Alonso sem hann fékk hjá Real Madrid gróin Andri Broddason skrifar 2. ágúst 2026 17:37 Xabi Alonso hefur hugsað vandlega um það hvað gerðist þegar hann var þjálfari Real Madrid. Ismael Adnan Yaqoob/Getty Images Xabi Alonso, þjálfara Chelsea, líður vel í nýju starfi eftir að hafa farið frá Real Madrid á sínu fyrsta ári þar. Hann fékk sár í Madrid sem hafa gróið og hefur dregið mikinn lærdóm af.
Miklar breytingar hafa átt sér stað hjá Chelsea eftir að Xabi Alonso tók við sem stjóri liðsins. Það hefur lifnað yfir honum sem þjálfara liðsins og er hann bjartsýnn á framtíðina. Eftir að hafa fylgst með Xabi Alonso sem leikmanni ætti það ekki að koma neinum á óvart að hann sé núna þjálfari. Hann byrjaði þó þjálfaraferilinn sinn rólega og fór ekki of geyst af stað. Fyrsta starf hans sem þjálfari var hjá Real Madrid þar sem hann þjálfaði U14 ára liðið. Það var mikilvægt fyrir hann að venjast því áður en hann hóf störf hjá meistaraflokksliði. Fyrsta þjálfarastarf hans hjá meistaraflokksliði var hjá Bayer Leverkusen þar sem hann þjálfaði í þrjú ár og vann þar fyrsta Þýskalandsmeistaratitil liðsins frá upphafi. Eftir gott gengi hjá Leverkusen var hann orðaður við nokkur lið og voru mörg þeirra lið sem hann hafði áður spilað fyrir sem leikmaður. Liðið sem hann tók við var eitt af þeim og það var risaliðið Real Madrid. Gengi ekki jafn gott og búist var við Gengi Alonso hjá Real Madrid varð ekki alveg eins og stuðningsmenn vonuðust eftir og byrjaði að vera þung stemming í klefanum. Leikmenn voru ósáttir við stjórnarhætti hans og endaði það með því að Alonso kláraði ekki heilt tímabil hjá félaginu heldur sagði hann starfi sínu lausu. Þrátt fyrir stuttan tíma hjá Real Madrid var Alonso enn eftirsóttur þjálfari og voru margir stuðningsmenn Liverpool, sem Alonso spilaði lengi fyrir þegar hann var leikmaður, ósáttir við Arne Slot sem þjálfara. Margir bundu því vonir við að hann myndi koma aftur til Liverpool en stuðningsmönnum brá heldur betur í brún þegar hann skrifaði undir sem þjálfari Chelsea. Ástæðan var einfaldlega að hann fékk ekki tilboð frá Liverpool-liðinu. Nú er Alonso önnum kafinn við að setja sínar áherslur á Chelsea-liðið og hefur hann fjárfest í leikmönnum með mikla reynslu. Það er það sem hefur vantað í búningsklefa Chelsea síðustu ár. Liðið hefur verið ungt og lítil reynsla og agi í búningsklefanum en það virðist vera að breytast núna. Áður en Alonso skrifaði undir sem þjálfari Chelsea fór hann vandlega yfir sínar hugmyndir með stjórn Chelsea um að hafa liðið eins og hann vill. Stjórnin og Alonso hafa greinilega verið á sömu blaðsíðu og virðast bjartari tímar vera á döfinni hjá Chelsea.
Enski boltinn Chelsea FC Mest lesið Blaðamannafundi Heimis frestað og von á yfirlýsingu Fótbolti „Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“ Sport Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Sport Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Sport Allt vitlaust á landsliðsæfingu þegar ungir mættu gömlum Sport Sjáðu stórkostlega aukaspyrnu Daníels Tristans gegn Frökkum Fótbolti Internetið gerir grín að Caleb Williams Sport „Höfum talað digurbarkalega um það“ Fótbolti Celtic og Rangers áfrýja Sport Nafnarnir í KA sáu um Val Sport Fleiri fréttir Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Sjá meira