Lífið

Út­för Megasar

Magnús Jochum Pálsson skrifar
FrÈttabla?i? Megas, æfing fyrir Passíusálma í Hallgrímskirkju
FrÈttabla?i? Megas, æfing fyrir Passíusálma í Hallgrímskirkju

Útför tónlistarmannsins Magnúsar Þórs Jónssonar, betur þekktur sem Megas, fer fram í dag frá Hallgrímskirkju klukkan 15. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir jarðsyngur Megas og sýnt er frá athöfninni í beinu streymi.

Megas lést á hjúkrunarheimilinu Grund þann 6. júlí síðastliðinn, 81 árs gamall. Hann var einn áhrifamesti tónlistar- og kvæðamaður íslensks samtíma og hafði ómæld áhrif á íslenska tungu, dægurmenningu og tónlist.

Á viðburðarríkum ferli mörkuðu lög hans á borð við „Tvær stjörnur“, „Fatlafól“, „Lengi skal manninn reyna“, „Reykjavíkurnætur“ og „Spáðu í mig“ djúp spor í tónlistarsögunni og lifa áfram með þjóðinni.

Hér að neðan má fylgjast með beinu streymi frá útför hans:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.