Vann Íslandsmeistaratitilinn á 0,02 sekúndum: „Sérstaklega skemmtilegt“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júlí 2026 17:00 Kolbeinn Höður Gunnarsson í viðtalinu við Ríkissjónvarpið eftir hlaupið. Skjámynd/RÚV Kolbeinn Höður Gunnarsson vann Íslandsmeistaratitilinn í 100 metra hlaupi karla með minnsta mun.
Kolbeinn kom í mark á 10,95 sekúndum og var aðeins 0,02 sekúndum á undan Kristófer Þorgrímssyni sem kláraði hlaupið á 10,97 sekúndum.Elvar Karl Auðunsson varð þriðji í hlaupinu á 11,26 (.2573) sekúndum en Gabríel Glói Freysson varð fjórði á hársbreidd en hann kom í mark á 11,26 (.2583) sekúndum. Það munaði bara 0,001 sekúndu á þriðja og fjórða sætinu og Gabríel Glói var því bara 0,1 sekúndubroti frá bronsinu.Kolbeinn Höður ræddi við Hans Steinar Bjarnason í beinni útsendingu Ríkissjónvarpsins eftir sigurinn.„Þetta hafa örugglega verið með einum tæpustu úrslitum á Meistaramóti Íslands bara hingað til og bara ógeðslega gaman að skila svona úrslitum á hundraðasta mótinu,“ sagði Kolbeinn Höður.„Ég er bara glaður og hress. Ég kom ekki með miklar væntingar því undirbúningurinn er ekki búinn að vera eins og ég vildi hafa hann. Ég ætlaði að gefa bara allt sem ég átti og það skilaði bara flottum sigri í dag,“ sagði Kolbeinn.„Þetta er náttúrulega alltaf bara gleði þó að tíminn hafi ekkert verið sérstakur. Við vildum örugglega allir sjá betri tíma en maður er bara fyrst og fremst hérna að sækja titil og það er sérstaklega skemmtilegt þegar þetta er svona tæpt,“ sagði Kolbeinn.Christina Alba Marcus Hafliðadóttir varð Íslandsmeistari í 100 metra hlaupi kvenna en hún vann örugglega á 11,83 sekúndum en næst kom Lena Rún Aronsdóttir á 12,46 sekúndum og Júlía Mekkín Guðjónsdóttir á 12,52 sekúndum.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Selja Japanann til Ipswich og kaupa gamla Valsarann í staðinn Hilmar Örn setti mótsmet og Jacques vann bæði gull og silfur Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Vann Íslandsmeistaratitilinn á 0,02 sekúndum: „Sérstaklega skemmtilegt“ Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Guðrún skoraði þegar Hammarby komst á topp deildarinnar Kristiansund komið í fallsæti eftir að Júlíus Már fékk rautt Varði Íslandsmeistaratitilinn en náði ekki að bæta metið Byrjar á ráspól eftir ótrúlegan lokahring Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Lærisveinar Tinnu rétt misstu af úrslitum Fór snemma út af í jafntefli við nýliðana Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Hljóp á hraðasta tíma ársins Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Æfir íslenskuna daglega í klefanum Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Sjá meira