Sport

Dag­skráin í dag: Fá Kefl­víkinga í heim­sókn milli Evrópu­leikja

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Óskar Borgþórsson og félagar í Víkingi unnu góðan sigur á Beer Sheva frá Ísrael, 2-1, í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á þriðjudaginn. Víkingar fá Keflvíkinga í heimsókn í kvöld.
Óskar Borgþórsson og félagar í Víkingi unnu góðan sigur á Beer Sheva frá Ísrael, 2-1, í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á þriðjudaginn. Víkingar fá Keflvíkinga í heimsókn í kvöld. vísir/diego

Íslandsmeistarar Víkings, sem standa í ströngu í forkeppni Meistaradeildar Evrópu, fá Keflavík, sem hefur komið flestum á óvart með góðu gengi í Bestu deild karla í sumar, í heimsókn í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland í kvöld.

Sýn Sport Ísland

Klukkan 19:50 hefst bein útsending frá leik Víkings og Keflavíkur í Bestu deild karla í fótbolta.

Sýn Sport 4

Klukkan 12:30 er komið að beinni útsendingu frá ISPS Handa Senior Open mótinu í golfi.

Sýn Sport 5

Klukkan 07:30 hefst bein útsending frá ISPS Handa Women's Scottish Open á LPGA-mótaröðinni í golfi.

Sýn Sport Viaplay

Klukkan 11:25 er komið að fyrri æfingunni fyrir ungverska kappaksturinn, elleftu keppni tímabilsins í Formúlu 1. Klukkan 14:55 hefst seinni æfingin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×