Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Samúel Karl Ólason skrifar 21. júlí 2026 08:32 Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical. Vísir/Vilhelm Embla Medical, sem áður hét Össur, hagnaðist um fjóra milljarða króna á öðrum fjórðungi ársins. Jókst hann um 39 prósent, borið saman við hagnað á sama ársfjórðungi í fyrra. Forstjóri fyrirtækisins segir vöxtinn fyrst og fremst drifinn af kröftugum innri vexti í stoðtækjum og góðum árangri nýrra vara.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársfjórðungsuppgjöri Emblu Medical. Þar segir að sala á öðrum ársfjórðungi 2026 hafi numið 32 milljörðum króna, sem samsvari ellefu prósenta heildarvexti og sex prósenta innri vexti. Innri vöxtur í sölu stöðtækja nam tólf prósentum en vöxtur í spelkum og stuðningsvörum var eitt prósent. Þá drógust tekjur af þjónustu við skjólstæðinga saman um tvö prósent. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir var sjö milljarðar króna. Það jafngildir 22 prósenta EBITDA-framlegð, samanborið við 21 prósent á sama tímabili í fyrra. Eins og áður segir var hagnaðurinn fjórir milljarðar, sem samsvarar ellefu prósentum af veltu. Áhugasamir geta fundið frekari upplýsingar hér á vef Emblu Medical. Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Mediacl, segir að sala á ársfjórðungnum hafi verið sterk. „Vöxturinn var fyrst og fremst drifinn áfram af kröftugum innri vexti í stoðtækjum, áframhaldandi góðu gengi í EMEA [Evrópa, Mið-Austurlönd og Afríka] og APAC [Asía og Kyrrahafið] og góðum árangri nýrra vara. Vöxtur í spelkum og stuðningsvörum var hóflegur, en tekjur af þjónustu við skjólstæðinga lækkuðu á fjórðungnum. EBITDA-framlegð var sterk á fjórðungnum, 22%, sem er hækkun um eitt prósentustig frá öðrum ársfjórðungi 2025. Hagnaður félagsins var einnig mjög góður og jókst um 39% á fjórðungnum. Með hliðsjón af afkomu fyrri árshelmings og væntingum um sterkari vöxt á seinni hluta ársins höfum við þrengt fjárhagsáætlun ársins fyrir innri vöxt í 5–7%, en áætlun um EBITDA-framlegð helst óbreytt í 20–22%.“
Embla Medical Mest lesið Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira