Gylfi Tryggvason : ,,Ótrúlega stoltur af stelpunum” Katla Margrét Jónsdóttir skrifar 20. júlí 2026 23:26 Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvík, var ánægður með frammistöðu síns liðs. Guðmundur/Vísir Gylfi Tryggvason var afar ánægður með frammistöðu Grindavík/Njarðvík eftir 4-2 sigur á Þrótti og hrósaði liðinu fyrir karakterinn sem það sýndi með því að snúa leiknum sér í hag þrátt fyrir að hafa lent tvívegis undir. „
Ég er ótrúlega stoltur af stelpunum. Það er mjög erfitt að lenda undir gegn Þrótti en við létum það ekki slá okkur út af laginu. Við héldum okkur við okkar leik og það skilaði sér,“ sagði hann. Hann taldi lið sitt hafa stjórnað leiknum á löngum köflum og sagði leikmennina hafa sýnt mikinn karakter þegar Þróttur komst aftur yfir snemma í seinni hálfleik. „Við vorum að skapa okkur færi og pressa vel á þær í fyrri hálfleik og uppskáruðum jöfnunarmarkið. Síðan lendum við aftur undir í byrjun seinni hálfleiks og það er annað áfall. En stelpurnar gáfust aldrei upp. Hugafarið í þessum hópi er frábært og þær héldu bara áfram. Mér fannst við eiga mjög góða frammistöðu í 90 mínútur og það skilaði sér í fjórum mörkum og sætum sigri.“ Spurður hvað hann vildi sjá frá liðinu í næstu leikjum sagði hann að markmiðið væri einfaldlega að byggja ofan á þessa frammistöðu. „Við höfum farið í gegnum töluverðar breytingar á leikmannahópnum í félagaskiptaglugganum og erum að einhverju leyti að stilla upp nánast nýju liði í seinni hluta mótsins. Þess vegna þurfum við að sýna þolinmæði á sama tíma og við höldum áfram að vinna eftir þeim gildum sem við höfum lagt upp með. Ef við getum sýnt svona frammistöðu áfram verð ég mjög sáttur.“ „Hún var frábær í dag og nýtti færin sín virkilega vel. Vonandi er hún leikmaður sem heldur áfram að vera jafn klínísk fyrir framan markið. Hún er þó nýkomin til liðsins og ég ætla ekki að dæma hana of snemma. Byrjunin lofar hins vegar góðu og hún átti frábæran leik í dag,” sagði Gylfi aðspurður út í nýliðan Santa Vuskane.
Besta deild kvenna Íslenski boltinn UMF Grindavík UMF Njarðvík Mest lesið Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ Handbolti Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Íslenski boltinn Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Enski boltinn „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Íslenski boltinn United aldrei í vandræðum Fótbolti Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Fótbolti Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Íslenski boltinn Óttast að Róbert Frosti sé alvarlega meiddur Fótbolti Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Golf Fleiri fréttir Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Sjá meira