Sport

Æfði í Las Vegas með þeirri sem er spáð sigri á heimsleikunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bergrós Björnsdóttir er hér í miðjunni á milli Alex Gazan og þjálfara hennar Justin Cotler.
Bergrós Björnsdóttir er hér í miðjunni á milli Alex Gazan og þjálfara hennar Justin Cotler. @bergrosbjornsdottir

Bergrós Björnsdóttir er á leiðinni á sína fyrstu CrossFit-heimsleika fullorðinna en það er óhætt að segja að spámenn hafi ekki trú á eina íslenska keppandanum í karla- og kvennaflokki á heimsleikunum.

Heimsleikarnir hefjast í Kaliforníu í Bandaríkjunum seinna í þessari viku og CrossFit-vefurinn The Barbell Spin spáir um röð kvennanna sem keppa í ár. Sérfræðingarnir þeirra setja okkar konu í þrítugasta og síðasta sæti listans.

Bergrós var vissulega sú síðasta til að tryggja sér farseðilinn á heimsleikana og er nýliði á hæsta stiginu. Það er því auðvelt að setja hana í síðasta sæti en um leið hefur þessi 19 ára Selfyssingur allt að vinna í keppninni í ár.

Bergrós er enn táningur og hún átti líka glæsilegan feril sem unglingur. Hún keppti þrisvar sinnum á leikunum í sínum aldursflokki og endaði sem þriðja hraustasta ungmenni heims árið 2023.

Þetta ár hefur án efa verið hennar stóra ár. Frábær frammistaða á WFP Tour Stop 1 í London og svo aftur á MAD Fitness Festival gaf sterka vísbendingu um hversu öflug hún væri orðin og sjöunda sæti í undanúrslitum á netinu innsiglaði svo farseðilinn á leikana. Ný íslensk dóttir var því á leið á heimsleikana eftir nokkurra ára fjarveru.

Bergrós undirbjó sig með því að fljúga snemma út til Bandaríkjanna og hefur verið að æfa í Las Vegas undanfarnar vikur. Þar fékk hún tækifæri til að æfa með einni af þeim bestu.

„Hún heitir Alex Gazan og ég er að fara að æfa með henni núna í Las Vegas þannig að þetta verður ævintýri. Ég verð hérna hjá henni í æfingabúðum í tvær vikur. Við förum síðan yfir til San Jose þar sem heimsleikarnir eru. Þetta er stórt tækifæri fyrir mig til að geta farið út og æft með henni,“ sagði Bergrós í viðtali við Íþróttadeild Sýnar áður en hún fór út.

Æfingafélagi hennar er Alex Gazan, reyndur keppandi sem tók þátt í þremur heimsleikum frá 2022 til 2024 en missti af leikunum í fyrra á grátlegan hátt.

Svo skemmtilega vill til að The Barbell Spin spáir Gazan sigri á heimsleikunum í ár. Hún er í fyrsta sæti í spánni á undan Lucy Campbell, Paige Rodgers og Emmu Lawson.

Klippa: Bergrós um æfingafélagann sinn í Las Vegas

Gazan stefndi hraðbyri að sínu besta keppnistímabili frá upphafi á síðasta ári þegar bílslys nokkrum dögum eftir að hún tryggði sér sæti á heimsleikunum 2025 batt enda á það. Hún sneri aftur til keppni á Rogue Invitational í október þar sem hún lenti í öðru sæti og vakti verðskuldaða athygli fyrir frábær tilþrif þar.

Alex tryggði sér keppnisrétt með því að sigra Nor Cal Classic-undanúrslitamótið og frammistaða hennar þar sem og á öllu tímabilinu þýðir að margir hafa trú á henni eins og sést á þessari fyrrnefndu spá.

Það verður líka fróðlegt að sjá hvort Bergrós nái að læra af þessari frábæru CrossFit-konu en það er örugglega ekki algengt að sú sem er spáð neðsta sætinu æfi með þeirri sem er spáð sigri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×