Fótbolti

Á­fall fyrir Sverri og ís­lenska lands­liðið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sverrir Ingi Ingason er lykilmaður í vörn íslenska landsliðsins.
Sverrir Ingi Ingason er lykilmaður í vörn íslenska landsliðsins. Getty/Nigel French

Íslenski landsliðsmiðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason verður ekkert með íslenska landsliðinu á næstunni en hann er með slitið krossband.

Panathinaikos sendir Sverri batakveðjur á miðlum sínum en hann sleit krossband í æfingaleik á móti austurríska félaginu Rapid Vín.

Sverrir verður væntanlega frá í átta til tíu mánuði vegna meiðsla og missir því ekki aðeins af landsleikjum haustsins og vorsins heldur einnig af öllu tímabilinu með gríska félaginu.

Sverrir hefur verið lykilmaður í miðri vörn íslenska landsliðsins og þetta er því mikið áfall fyrir liðið að missa slíkan reynslubolta.

„Stay strong, Ingason. We’re with you every step of the way,“ segir í kveðju til okkar manns á miðlum Panathinaikos eða upp á íslensku: „Vertu sterkur, Ingason. Við stöndum með þér alla leið.“

Sverrir Ingi er 32 ára gamall og kom til Panathinaikos frá Midtjylland árið 2024. Hann er með samning til 2028.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×