Sport

ESB-lönd vilja stöðva fjár­streymi til sam­banda sem hleypa Rússum inn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fáni Rússlands og fáni Ólympíuleikanna en Rússar hafa ekki fengið að flagga sínum fána á síðustu Ólympíuleikum.
Fáni Rússlands og fáni Ólympíuleikanna en Rússar hafa ekki fengið að flagga sínum fána á síðustu Ólympíuleikum. Getty/Victor Fraile

Danmörk og átta önnur lönd í Evrópusambandinu hafa sent Alþjóðaólympíunefndinni harðort bréf í kjölfar þess að samtökin afléttu banni á rússnesku ólympíunefndina.

Í bréfinu segir að „ef íþróttasambönd leyfa rússneskum og hvítrússneskum íþróttamönnum að taka þátt í alþjóðlegum keppnum, þá geti viðkomandi íþróttasamband ekki fengið styrki frá ESB“.

Þar með er lagt til að alþjóðleg sérsambönd sem nú opna fyrir fulla þátttöku Rússa gætu átt von á fjárhagslegum afleiðingum.

Glenn Micallef, íþróttafulltrúi ESB, hefur miklar áhyggjur af því að rússneskir íþróttamenn hafi aftur fengið leyfi til að koma fram á alþjóðavettvangi. Sama gildir um nokkra aðra háttsetta stjórnmálamenn frá ESB-löndum.

„Það er fáránlegt að Rússi geti fengið gullverðlaun um hálsinn á meðan sprengjum rignir yfir Úkraínu. Það er óþolandi,“ sagði Zenia Stampe, menningarmálaráðherra Danmerkur, í fréttatilkynningu frá danska menningarmálaráðuneytinu.

IOC aflétti útilokuninni í sumar. Það hefur enn ekki verið ákveðið hvort íþróttamennirnir geti keppt undir eigin fána á Ólympíuleikunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×