Virkar eins og forfallakennari Andri Broddason skrifar 14. júlí 2026 14:16 Sérfræðingar Stúkunnar finnst Chris Brazell, þjálfari Vals, virka eins og forfallakennari. Grótta/Eyjólfur Garðarsson Valur hefur verið í vandræðum og upp á síðkastið hefur aðeins unnið einn leik af síðustu sjö sem liðið hefur spilað. Hermann Hreiðarsson var rekinn fyrir stuttu sem þjálfari liðsins og hefur gengi liðsins ekki batnað síðan þá.
Guðmundur Benediktsson fékk þá Albert Brynjar Ingason og Sigurbjörn Örn Hreiðarsson til að ræða stöðu Vals og mynduðust góðar umræður. Gummi Ben spurði Sigurbjörn, sem er fyrrverandi leikmaður Vals, um stöðuna á þjálfaramálum liðsins þar sem ekkert breyttist eftir að Hermann Hreiðarsson var rekinn. Chris Brazell var aðstoðarþjálfari liðsins undir Hermanni og mun klára tímabilið sem aðalþjálfari liðsins. Halldór Árnason hefur verið ráðinn þjálfari Vals en hann tekur ekki við liðinu fyrr en eftir tímabilið. „Það er engin breyting þar sem Chris Brazell sá um æfingar liðsins og var þjálfari úti á æfingasvæði. Þegar hann verður aðalþjálfari er hann ekkert að fara að breyta æfingunum, leikmennirnir finna ekki fyrir breytingunum,“ segir Sigurbjörn og bætir við að hann hefði viljað sjá Halldór verða þjálfara liðsins um leið og hann hafi verið tilkynntur. „Þetta er bara millibilsástand sem engum leikmanni líður vel með.“ Klippa: Stúkan: Umræða um Val Samkvæmt því sem sérfræðingar Stúkunnar komast næst er ástæðan fyrir því að Halldór Árnason hafi ekki tekið við Val strax vegna þess að hann er enn að fá greitt frá Breiðablik. Halldór var rekinn frá Breiðablik í október á síðasta ári en hann var nýbúinn að skrifa undir nýjan samning við félagið þegar hann var látinn fara. Sérfræðingarnir veltu fyrir sér hvort Valur gæti ekki leyst þetta vandamál og borgað meira til að fá Halldór strax til liðsins þar sem gengi liðsins í dag er enn slæmt. Valur ætti að borga það sem þarf til þess að fá Halldór Árnason strax við störf liðsins. Chris Brazell er að þeirra mati ekki sannfærandi sem aðalþjálfari liðsins og virkar á þá sem forfallakennari í skóla sem hefur enga stjórn á bekknum. „Í síðasta leik í Eyjum fær Valur fimm gul spjöld á sig og eitt rautt spjald. Í leik Vals og FH var ekkert mikið af spjöldum en Lúkas Logi átti að fá rautt, hann yfirtæklar. Manni finnst það vera agaleysi þarna,“ sagði Albert Brynjar, sem er einnig fyrrum leikmaður Vals, um stöðu liðsins. Eftir þetta urðu Sigurbjörn Örn og Albert Brynjar ósammála um hvort Brazell hafi reiknað með því að verða aðalþjálfari Vals. Sigurbjörn sagði það vera erfitt að breyta um hlutverk sem þjálfari á meðan Albert Brynjar vildi meina að Brazell hefði reiknað með að hermann Hreiðarsson yrði rekinn. „Ég held að hann hafi alveg átt von á því á einhverjum tímapunkti á þessu tímabili að stýra þessu liði,“ sagði Albert Brynjar en Sigurbjörn Örn var ekki sammála þeim rökum.
Stúkan Besta deild karla Valur Íslenski boltinn Mest lesið Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Íslenski boltinn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ Handbolti Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Enski boltinn Afturelding - FH | Rafmagnaður leikur í Mosfellsbæ Handbolti „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Íslenski boltinn Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Íslenski boltinn Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Golf Óttast að Róbert Frosti sé alvarlega meiddur Fótbolti Fleiri fréttir Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Stórbrotin Ída Marín með þrennu í sigri Hammarby Sjá meira