Sport

Dag­skráin: Bestu mörk kvenna og sjóð­heitar stjörnur á Hlíðar­enda

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stjörnukonur fagna einu af mörkum sínum í Bestu deild kvenna í sumar.
Stjörnukonur fagna einu af mörkum sínum í Bestu deild kvenna í sumar. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á föstudögum.

Besta deild kvenna í fótbolta er farin aftur af stað eftir smá sumarfrí vegna þátttöku nítján ára landsliðsins í úrslitakeppni EM.

Fjórir leikir fóru fram í gærkvöldi og í kvöld verður sýnt beint frá lokaleik tíundu umferðar milli Vals og Stjörnunnar á Hlíðarenda. Strax á eftir munu Bestu mörkin síðan gera upp alla umferðina eins og þeim einum er lagið.

Stjörnukonur unnu fjóra síðustu leiki sína fyrir frí og hoppuðu upp í þriðja sæti deildarinnar.  Á sama tíma hafa Valskonur dregist niður í neðri hlutann.

Það verður einnig sýnt frá snókermóti og tveimur golfmótum.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport Ísland

Klukkan 17.50 hefst bein útsending frá leik Vals og Stjörnunnar í tíundu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta.

Klukkan 20.05 hefjast Bestu mörkin þar sem farið verður yfir leikina í tíundu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta.

SÝN Sport 4

Klukkan 10.00 hefst bein útsending frá The Amundi Evian Championship-golfmótinu á LPGA-mótaröðinni.

SÝN Sport 5

Klukkan 12.00 hefst bein útsending frá Genesis Scottish Open-golfmótinu á DP World Tour-mótaröðinni.

SÝN Sport Viaplay

Klukkan 10.00 hefst bein útsending frá snókermóti hjá Championship League Snooker.

Klukkan 15.30 hefst bein útsending frá snókermóti hjá Championship League Snooker.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×